Vinsælir kaffidrykkir fyrir vinnustaðinn
Þar sem viðskiptavinir, starfsfólk og gestir geta notið óviðjafnanlegs kaffibolla, ríkir almennt afkastamikið og afslappað andrúmsloft. Allir sem kunna að meta gæði, úrval vinsælla kaffidrykkja og fagurfræði munu elska WE8.
Kaffivélin er fullkomin lausn á stöðum þar sem drukknir eru um 30 kaffibollar á dag. Vatnstankurinn tekur 3 l af vatni, baunatankurinn tekur 500 g af kaffibaunum og affallsbakkinn tekur við kaffikorgi úr allt að 25 kaffibollum.
Ánægja við kaffidrykkju er endurskilgreind sökum byltingarkenndra tækninýjunga. Vinsælir kaffidrykkir eins og cappuccino, Flat White og latte macchiato eru töfraðir fram með einni snertingu. Stjórnborð, takkar og nútímalegur TFT skár framan á vél gera notkun einkar einfalda, jafnvel fyrir óreynda notendur.
Tækninýjungar fyrir fullkomna ánægju
WE8 býður upp á 12 mismunandi drykkjarmöguleika. JURA hefur fullkomnað uppáhellingarferlið fyrir stutta kaffidrykki sem gerir það að verkum að WE línan hellir upp á þá með sama gæðastandard eins og þú myndir búast við á kaffihúsum. Keilulaga AromaG3 kvörnin tryggir bestu mölun kaffibauna. Kvörnin malar ferskar baunir hratt en varlega og varðveitir þar af leiðandi mikla fyllingu og bragðgæði kaffibaunanna. Púlsuppáhelling (P.E.P.®), tækninýjung þróuð af JURA fullkomnar uppáhellingartímann. Þegar hellt er upp á ristretto eða espresso, þrýstir vélin vatninu í gegnum kaffið í púlsum með ákjósanlegri tíðni miðað við valið vatnsmagn. Einnig er mögulegt að töfra fram vinsæla kaffidrykki með mjólk og mjólkurfroðu með einni snertingu án þess að þurfa að færa bollann.
TÜV skírteini fyrir hreinlæti
Góð umgengni og hreinlæti er nauðsynlegt á vinnustaðnum. Innbyggð skolunar- og hreinsikerfi ásamt sérþróuðum rekstrarvörum fyrir JURA kaffivélar, tryggja fullkomið hreinlæti með einni snertingu. Einnig er mögulegt að hreinsa mjólkurkerfið hratt og auðveldlega með einni snertingu. WE8 er frábær kostur fyrir vinnustaði sem eru reknir samkvæmt HACCP* og er vélin vottuð af TÜV Rheinland.
* Hazard Analysis and Critical Control Points
Jafn einstök og þínar þarfir eru
WE8 hefur marga valmöguleika þegar kemur að stillingum og notendamiðuðum breytingum, vegna þess að þarfir geta verið mismunandi frá einum stað til annars. Mögulegt er að aðlaga magn malaðs kaffis og vatns bæði að persónulegum þörfum og þeim bollum / glösum sem eru notuð. Einnig er hægt að stilla inn ákveðna uppáhalds kaffidrykki með því að óvirkja aðra. Mismunandi viðmót eru möguleg, til dæmis er hægt að leyfa aðeins breytingar á forstillingum og vatnsmagni eftir að talnaruna hefur verið slegin inn, en það getur komið í veg fyrir að mistök geti átt sér stað.
WE8 - Uppsetning fyrir fyrstu notkun