Viðhald á hnífum.
Gæðahnífar þurfa umhyggju til að þú náir að njóta þeirra í sem lengstan tíma.
Fyrir fyrstu notkun, skolið hnífinn með heitu vatni. Þrífið hnífinn eftir hverja notkun með sápuvatni, skolið með vatni og þurrkið með mjúkum klút.
Aldrei setja hnífa í uppþvottavél. Uppþvottavélin fer ekki bara illa með efnið í hnífnum heldur hefur líka slæm áhrif á bit hnífsins.
Ekki nota gler eða granít skurðarbretti, þau eyðileggja eggina á hnífnum. Notið tré eða plastbretti, helst í mýkri kantinum.
Hnífar með viðarhandföngum eiga ekki að liggja lengi í vatni. Berið hlutlausa grænmetisolíu af og til á viðarhandföngin til að viðhalda þeim.
Við geymslu á hnífum, passið að eggin komist ekki í snertingu við aðra málmhluti. Þannig minnkar þú líkurnar á að eggin skemmist.
Geymið hnífana í/á hnífastandi, skúffu með hnífahólfum eða á veggsegul.