Gashelluborð úr Classic línu Smeg. Gasbrennarar eru 5 þar af af 1 öflugur wok brennari og breiddin um það bil 90 cm. Helluborðið er með pottjárnsgrindum, yfirborði úr ryðfríu stáli og öryggisventli gegn gasleka.
Smekkleg hönnun sem einkennist af ryðfríu stáli og hreinum línum
Fyrsta vörulínan sem Smeg hannaði í samstarfi við arkítektinn Guido Canali fékk nafnið Classica. Ryðfrítt stál er aðalsmerki línunnar og hvernig það er notað á afskaplega smekklegan og nákvæman hátt. Tækin í Classic línunni eru með einkennandi stjórntökkum og handföngum, sem minna um margt á tæki í atvinnueldhúsum. Þau eru hagnýt og fjölhæf sem endurspeglar, auk glæsilegrar útlitshönnunar, gæði þeirra. Hönnunin einkennist af beinum línum, einföldum formum og er í senn hrein og fáguð. Skemmtilega tímalaus stíll með nútímalegu ívafi sem sómir sér vel í flestum gerðum eldhúsa.
Vandað efnisval
Efnisval helluborðsins er vandað og það sómir sér vel í hvaða eldhúsi sem er. Hágæða ryðfrítt stál gefur borðinu nútímalegt og stílfagurt yfirbragð. Sterkbyggðar og hitaþolnar pottjárnsgrindur veita síðan hámarks stöðugleika fyrir potta og pönnur. Þessi gæði skila sér í góðri endingu helluborðsins og einföldum þrifum.
Fjölbreyttar stærðir brennara með rafmagnskveikju
Fjölbreyttar stærðir brennara gefa möguleika á réttu afli fyrir öll tækifæri. Helluborðið er með allt frá litlum orkusparandi brennara fyrir hæga og viðkvæma eldun að öflugum wok brennara fyrir mikið magn af mat og hraða upphitun. Gashelluborðið er einnig með rafmagnskveikju og því engin þörf á eldspítum eða kveikjara. Stjórntakka er þrýst niður, snúið og haldið niðri með annarri hönd í nokkrar sekúndur til að kveikja á tilheyrandi brennara.
Öryggisventill gegn gasleka
Hámarks öryggi og hugarró fæst með öryggisventli gegn gasleka. Ef gaslogi slokknar tímabundið, t.d. vegna uppúrsuðu eða gegnumtrekks, þá lokar helluborðið á gasflæði til brennara eftir örskamma stund.