Jura kaffivél PRO W4 Dark inox

Vörunúmer: 15542

  299.990 kr
  Vara væntanleg

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

Nett, sjálfvirk kaffivél fyrir vinnustaðinn – svart kaffi

Fyrirferðarlítil kaffivél með þeim þægindum sem þú óskar eftir fyrir vinnustaðinn: W4 er öflug, professional kaffivél sem hellir upp á svart kaffi og er einstaklega notendavæn.

W4 státar af nútímatækni og er Professional Aroma kvörnin (P.A.G.2) þar á meðal. Hún malar af nákvæmni og gefur svörtum kaffidrykkjum þann styrkleika sem óskað er eftir, allt frá fyrsta bolla. Auk þess er vélin búin One-Touch Lungo tækni fyrir langa kaffidrykki og Púlsuppáhellingu P.E.P.® fyrir öflugan espresso sem eykur enn frekar á hæfni vélarinnar þegar kemur að hreinum kaffidrykkjum.

Hönnun vélarinnar byggir á notagildi og klassískri fágun JURA. W4 er afar notendavæn, með litaskjá, þrýstitökkum og snúningsrofa fyrir heitt vatn sem allir eru staðsettir framan á vélinni. Óaðfinnanlegt hreinlæti með einni snertingu og læsanlegur vatns- og baunatankur tryggja auðvelda meðhöndlun. Forritun W4 tryggir nauðsynlegt svigrúm fyrir sveigjanleika, á meðan skýrar línur vélarinnar gefa henni yfirbragð tímalausrar fegurðar. Magn kaffis og vatns, sem og möguleikum á læsingu, er hægt að breyta og stilla eftir þörfum.

W4 kaffivélin, sem er með 3 L vatnstanki og 500 g baunahólfi, er tilvalin fyrir staði þar sem þörf er fyrir vél sem afkastar allt að 50 svörtum kaffidrykkjum á dag.

 

Framúrskarandi kaffigæði

Professional Aroma kvörnin (P.A.G.2) tryggir bæði stöðug, fullkomin kaffigæði og að allt bragð kaffibaunanna skilar sér í bollann. Eftir hverja uppáhellingu snýst P.A.G.2 kvörnin til baka í upprunalega hvíldarstöðu, sem tryggir ekki aðeins fullkomnun heldur líka stöðug gæði mölunar og langan þjónustutíma kvarnarinnar. Framúrskarandi kaffigæði eru einnig tryggð með þremur mismunandi uppáhellingaraðferðum sem gefa kaffidrykkjunum sjálfkrafa sinn sérstaka blæ – hvort sem um ræðir espresso, hefðbundið kaffi eða lungo.

 

 

Fullkomið notagildi

Fagmannleg að öllu leyti, W4 tekur mið af þörfum bæði rekstraraðila og kaffidrykkjufólks. 3.5” litaskjár ásamt sex tökkum framan á vél bjóða upp á þægilegan aðgang að valmyndinni. Hvað varðar notkun, eru fjölbreyttar stillingar og möguleiki á læsingu eftirtektarverð. Þökk sé vatns- og baunatanki sem hægt er að læsa er vélin varin gegn utanaðkomandi áhrifum og vel hannaðir íhlutir, eins og affallsbakki og bakki undir kaffikorg, bjóða upp á auðvelda meðhöndlun við daglega notkun.

 

 

Skír lína hönnunar

Með skírum línum sínum býr W4 yfir þægilegri ró. Hún passar vel inn í hvaða umhverfi sem er og má best lýsa sem ákveðnum formföstum stöðugleika á líflegum vinnustaðnum. Virkni og snjall hugbúnaður toppa að lokum heildarmynd þessarar notendavænu, professional sjálfvirku kaffivélar.

 

 

Jafn einstök og þínar þarfir eru 

Mögulegt er að tengja W4 við greiðslukerfi sem eru sérstaklega hannað fyrir JURA professional kaffivélar. Þannig er hægt að búa til klæðskerasniðna heildarlausn varðandi kaffi fyrir fjölbreyttar aðstæður.

Notendaleiðbeiningar
Uppsetning fyrir fyrstu notkun

 

Hönnun og útlit

LiturDökkt stál
HönnunFrístandandi
VörulínaW lína
Skjár3.5" TFT litaskjár

Notkun

Ráðlagður bollafjöldi að hámarki á dag50
Hentar fyrir vinnustofur & sýningarsaliJá
Hentar fyrir skrifstofurJá
Hentar fyrir verslun & þjónustuJá
Hentar fyrir verksmiðjur & verkstæðiJá

Úrval drykkja

1 EspressoJá
1 Espresso doppio
Já
2 EspressoJá
1 KaffiJá
2 KaffiJá
1 Lungo
Já
1 Americano
Já
1 Special coffeeJá
Heitt vatnJá
Heitt vatn fyrir Grænt TeJá
Fjöldi drykkja10

Fjöldi bolla á klst (samkvæmt DIN 18873-2)

Espresso75
2 x Espresso102
Kaffi73
2 x Kaffi95
Heitt vatn66

Tækni

Púlsuppáhelling P.E.P.®
Já
Ilmaukandi for-uppáhelling
Já, Intelligent Pre-Brew Aroma System (I.P.B.A.S.©)
Gerð kvarnarP.A.G.2
Uppáhellari - Pressa5 - 16 g
Thermoblock hitakerfi1
Vatnskerfi1
Afkastamikil dæla, 15 bar1

Þægindi notanda

Vatnstankur3,0 L
Rúmtak baunatanks500 g
Lok á kaffibaunatanki sem verndar ilm og bragðJá
Kaffikorgur (hám. fjöldi bolla í tank)25
Hægt að sjá fjölda uppáhelltra kaffidrykkjaJá
Lætur vita þegar vantar kaffibaunirJá
Lætur vita þegar þarf að tæma affallsbakkaJá
Hægt að læsa baunatanki & vatnstankiJá
Fallrenna fyrir malað kaffi
Já

Net & snjallsímatengingar

WiFi Connect
Já
Smart Connect
Já
Payment ConnectJá

Breytanlegar stillingar notanda

Styrkleiki á kaffi10 stig
Hitastig á kaffi3 stig
Hitastig á heitu vatni3 stig
Hægt að stilla grófleika mölunar
Já

Hentugt viðhald

Gerð vatnsfiltersCLARIS Pro Smart+
Innbyggt skol-, hreinsi- og afkölkunarkerfiJá
Tüv skírteini fyrir hreinlæti
Já

Kaffistútar

Hæðarstillanlegur kaffistútur með stút fyrir heitt vatn65 - 111 mm

Tæknilegar upplýsingar

Hæð44,3 cm
Breidd29,5 cm
Dýpt44,6 cm
Heildarafl1.450 W
Spenna220 - 240 V
Rafstraumur - Amper10 A
Tíðni50 Hz
Þyngd10,4 kg
Þyngd í pakkningum13,3 kg
Lengd rafmagnssnúru1,1 m
Hægt að tengja við greiðslutæki (Valkvætt)Já, með aukabúnaði
Rafmagnsnotkun þegar slökkt er á kaffivél< 0,5 W

 

Tengdar vörur