Sérsniðin kaffiupplifun með Bluetooth®
Að stjórna sjálfvirku kaffivélinni sinni í gegnum snjallsíma eða sjaldtölvu er núna auðveldara en nokkru sinni fyrr þökk sé JURA Smart Connect en einnig er hægt að tengjast öðrum Snjall-aukahlutum frá Jura. Smart Connect notar Bluetooth® samskiptatækni í gegnum sendi sem er stungið í kaffivélina með einföldum hætti. Með Jura appinu JOE er hægt að hella upp á kaffi og breyta stillingum í kaffivél "þráðlaust".
Jura Operating Experience (J.O.E®) er nútímalegt snjallforrit sem gerir þér kleift að nýta þér alla helstu kosti sem í boði eru frá Jura.
J.O.E ®
Frítt notendaviðmót í snjallsíma

Jura snjallforritið J.O.E.® gerir þér kleift að nálgast allt sem Jura kaffivélin þín býður uppá í snjallsímanum og jafnvel í Apple Watch. Þú getur kallað uppáhaldsdrykkina þína það sem þig langar til og vistað þá mynd sem þig langar til að nota. Hægt er að breyta öllum stilling á kaffidrykkjum í snjallforritinu. Forritið getur látið þig vita af stöðu vélarinnar, s.s. ef það þar fað fylla vatnstank, baunahólf eða þegar þarfað þrífa vélina. Hægt er að nýta sér Siri-Shortcuts og hella uppá kaffidrykki með Apple Watch.
J.O.E.® er hægt að nota með öllum Jura kaffivélum þar sem Smart Connect hefur verið sett í vélina.
Hægt er að hlaða niður J.O.E.® hér:
Nauðsynlegar hugbúnaðar upplýsingar fyrir snjallsíma / spjaldtölvur