Helstu eiginleikar
SmartDosing - Slepptu því að skammta sápuefni í allt að einn mánuð
Sjálfvirk sápuskömmtun sparar tíma, þvottaefni og orku! Helltu einfaldlega þvottaefninu í geyminn og slepptu því að skammta því í allt að einn mánuð, sem er að meðaltali 20 þvottalotur. Uppþvottavélin mun skammta réttu magni af þvottaefni sjálfkrafa, allt eftir því hvaða þvottakerfi þú velur. Geyminn er hægt að fjarlægja og hann er auðveldur í þrifum.
Extra hreinlæti með UV tækni - Fjarlægir allt að 99,9% af bakteríum og vírusum
Raunveruleg bakteríudrepandi áhrif einnig á þvottakerfum með lægri hitastigum (t.d. ECO 55°C). UV tækni er virkjuð með einföldum snertitakka á stjórnborðinu. Valfrjáls kostur sem er hægt að nota samhliða öllum þvottakerfum. Valkosturinn fjarlægir allt að 99,9% af bakteríum og vírusum úr skolvatninu, þegar hann er notaður með þvottakerfum ECO, Auto, Öflugur þvottur, Næturþvottur og Hreinlæti.
SmartUltra Dry – Frábærlega þurrir diskar
Að þvottakerfi loknu opnast hurð uppþvottavélarinnar sjálfkrafa. Örlítil rifa myndast sem hleypir fersku lofti inn í vélina. Auk þess fer vifta af stað sem knýr heitu gufuna út úr innanrýminu. Þetta skilar sér í því að þurrkun verður enn árangursríkari.
Intensive CleanZone - Fullkomin lausn fyrir erfiða bletti og mikil óhreinindi
Tveir öflugir og afkastamiklir/áhrifaríkir stútar eru staðsettir í aftari hluta innanrýmisins sem vinna á erfiðum blettum á áhrifaríkan hátt. Vatnið sem sprautast úr stútunum er undir háþrýstingi og beinist það beint að erfiðustu blettunum. Fullkomið til þess að þrífa potta, pönnur og bökunarplötur.
ConnectLife – "Allt varðandi uppþvottavélina við fingurgómana"
Einfaldaðu lífið og vertu með alla möguleika til að stjórna og athuga stöðu uppþvottavélarinnar með appi í símanum. Þú færð upplýsingar um stöðu vélarinnar, færð tilkynningar þegar þvottakerfi er lokið og getur sett þvottakerfi í gang - allt fyrir auðveldari og hraðvirkari stjórnun hvaðan sem er.
Jónísk tækni - Kemur í veg fyrir óæskilega lykt á meðan þú fullhleður vélina
Margir kannast við vonda lykt sem myndast í uppþvottavélum sem standa hálfhlaðnar í nokkra daga. Gorenje uppþvottavélin er með háþróaðri jónískri tækni, sem eyðir óæskilegri lykt á náttúrulegan hátt og heldur uppþvottavélinni ferskri, jafnvel þegar hún er full af óhreinu leirtaui.
Hnífaparaskúffa - Sveigjanleiki við höndina
Þrjár grindur eru í innanrými uppþvottavélarinnar og nýtist plássið í henni þar af leiðandi mjög vel. Efsta grindin er fullkominn fyrir hnífapör og eldhúsáhöld. Grindina er hægt að stilla og draga hluta hennar til allt eftir því hvað hentar hverju sinni. Sérstakur þvottaarmur er staðsettur í toppi vélarinnar fyrir ofan hnífaparagrindina. Þessi efri armur nær til allra hnífapara og áhalda í grindinni og eykur þvottahæfni um allt að 30%.
Fylgiskjöl
Tæknilegar upplýsingar
Almennar upplýsingar | |
Vöruflokkur | Uppþvottavélar |
Gerð | 100% innbyggð |
Vörulína | Superior Line |
Breidd | 60 cm |
Stjórnborð | Snertitakkar |
Útlit stjórntakka | Tákn - enska |
Eiginleikar | |
WiFi - stjórnun með snjalltækni | Já |
AutoDos - sjálfvirk sápuskömmtun | Já |
Sjálfvirk hurðaropnun | Já |
Innri lýsing | LED lýsing |
Stöðuljós sem segir til hvort þvottakerfi sé lokið | LED ljós neðan á hurð |
Gefur til kynna að þvottakerfi sé lokið | Ljós - hljóðmerki |
Lætur vita þegar vantar gljávökva og salt | Já |
Þvottakerfi | |
Auto | Já |
ECO | Já |
Hraðþvottur - 1 klst | Já |
Öflugur þvottur | Já |
Glasaþvottur | Já |
Hreinlæti | Já |
Næturþvottur | Já |
Mögulegt að búa til sérsniðin notendakerfi | Já |
Sjálfhreinsikerfi | Já |
Hitastig þvottakerfa í °C | 40/45/50/55/60/65/70 |
Valkostir þvottakerfa | |
Tímaseinkun | 0 - 24 klst |
Hraðþvottur - styttir þvottatíma | Já |
TotalDry - extra þurrkun og hurðaropnun | Já |
UV tækni - extra hreinlæti | Já |
Ion tækni - eyðir óæskilegri lykt | Já |
Innrétting - Innvols | |
Tekur boðrbúnað fyrir | 16 manns |
Fjöldi grinda | 3 |
Hnífaparagrind | Já |
Efri grind hæðarstillanleg | Já |
Vínglasahaldarar | Já |
Bollahaldarar | Já |
Hráefni þvottaarma | Plast |
Innra byrði | Ryðfrítt stál |
Orkunýting | |
Orkunýtingarflokkur | C |
Hljóðstyrkur | 39 dB (A) |
Flokkur hljóðstyrks | B |
Vegin orkunotkun á 100 þvottalotur | 76 kWh |
Vatnsnotkun á þvottalotu | 9,6 L |
Orkunotkun í biðstöðu | 0,49 W |
Hámarkshiti á vatnsinntaki | 70 °C |
Mótor | Inverter PowerDrive mótor |
Tímalengd ECO þvottakerfis | 200 mín |
Öryggi | |
Vatnslekavörn | Total AquaStop |
Gaumljós gefur til kynna hvenær þjónustu er þörf | Já |
Tæknilegar upplýsingar | |
Tækjamál (BxHxD) | 59,8 x 81,6 x 55,5 cm |
Mál umbúða (BxHxD) | 64,0 x 88,0 x 66,5 cm |
Innbyggimál (BxHxD) | 60,0 x 82,0 x 55,5 cm |
Nettóþyngd | 34 kg |
Brúttóþyngd | 36 kg |
Heildarafl | 1.900 W |
Spenna | 220 - 240 V |
Rafstraumur - Amper | 10A |