BigSpace – Extra stórt ofnrými
Ofninn er með rúmgóðu ofnrými og mögulegt er að setja ofnplötur á fimm mismunandi hæðarstillingar. Ofninn fer þar af leiðandi létt með eldun á jafnvel 9 kg kalkúni! Gorenje+ ofnar gera þér einnig kleift að baka á þremur hæðum á sama tíma, þökk sé MultiFlow360° sem tryggir jafna, hraðvirka og orkunýtna eldun matvæla. Í Gorenje tækjum helst þannig frammistaða í hendur við orkunýtingu: jafnvel rúmbestu ofnarnir eru meðal þeirra hagkvæmustu á markaðnum. Þar sem ofnrýmið er stærra, hefur þú einnig frábæra yfirsýn yfir allt eldunarferlið.
PyroClean - Einstakt sjálfhreinsikerfi
Hreinsun með PyroClean er öflugasta og skilvirkasta leiðin til að hreinsa ofninn. Ofninn hitar sig upp í allt að 500°C hita sem hreinsar ofnrýmið og fjarlægir hverja einustu fituörðu. Strjúktu einfaldlega ofnrýmið með blautum klút til þess að fjarlægja leifarnar þegar ofnrýmið hefur kólnað aftur. Gorenje býður upp á 3 stig PyroClean sem er mismunandi eftir módelum og ræður tímalengd árangri: væg hreinsun tekur 90 mínútur, miðlungs hreinsun tekur 120 mínútur og mjög öflug hreinsun 150 mínútur. Ofninn læsir sér á meðan á hreinsun stendur og helst læstur í ákveðinn tíma eftir að hreinsun lýkur, sem hjálpar til við að tryggja öruggt umhverfi fyrir fjölskylduna í eldhúsinu.
*Athugið að áður en sjálfvirka hreiniskerfið er keyrt, þá er nauðsynlegt að fjarlægja alla aukahluti t.d. grindur og útdraganlegar brautir úr ofnrýminu.
MultiFlow 360° - Jöfn dreifing lofts
Sannarlega jöfn eldun á nokkrum réttum á mismunandi hæðum í ofnrými krefst fullkominnar hringrásar hitaðs lofts eða gufu. MultiFlow 360° kerfi Gorenje tryggir að hringrásin sé ákjósanleg alls staðar í ofnrýminu. Ný þrívíddarhönnun bakveggs með snjöllu gatamynstri tryggir að blástur kemur inn í rýmið frá mörgum punktum. Hann ásamt viftunni leiðir til loft- eða gufuflæðis sem umvefur matvælin heitu lofti og eldar þau jafnt óháð því á hvaða hæð bökunarplatan er sett.
GentleClose – Fáguð og þýð hurðarlokun
Varleg snerting er nóg til þess að loka ofnhurðinni á einfaldan, mjúkan, hljóðlátan og fágaðan hátt. Þessi þægindi eru tilkomin vegna nýrra hurðarhjara. GentleClose hefur verið endurbætt enn frekar og stenst samanburð við lausnir sem finnast í vönduðum innréttingaskápum. Góð bygging og varanleg ending.
Fullútdraganlegar brautir
Fullútdraganlegar brautir veita betri sýn og meira öryggi þegar kemur að því að setja plötur inn í ofninn eða fjarlægja þær.
DynamicCooling – Kæling ytra byrðis
DynamicCooling sér til þess að hitastig ytra byrðis sé hæfilega lágt öllum stundum. Sérstök vifta í ofnrými blandar lofti úr umhverfinu við heitt loft frá ofninum til að tryggja að kælt loft streymi stöðugt undir ytri veggi tækisins. Þetta kerfi kemur á áhrifaríkan hátt í veg fyrir að innréttingaskápar við ofninn ofhitni, jafnvel þegar ofninn er keyrður á hæsta mögulega hitastigi t.d. sjálfhreinsikerfi.
PerfectGrill – skilvikari og öruggari grillelement
Eitt stórt og annað minna grillelement eru staðsett í innfelldu ofnloftinu. Vandlega úthugsuð staðsetning grillelementa tryggir bæði öryggi gagnvart bruna við notkun ofnsins og skapar ákjósanlega hitadreifingu. Þannig næst fullkominn árangur við eldun í hvert skipti og matvælin verða stökk að utan en mjúk að innan.
Kjarnhitamælir - Hárrétt steikt í hvert einasta skipti
Valdar gerðir af Gorenje+ ofnum eru með sérstökum kjarnhitamæli. Mælinum er stungið inn í kjötbitann og æskilegt kjarnahitastig valið. Ofninn gefur til kynna hvenær kjötið er tilbúið og steikin þín verður fullkomin í hvert skipti.
SilverMatte - Nýr, þolinn glerjungur
Nýr SilverMatte glerjungur, í ofnrými og á bökunarplötum, veitir þol gagnvart háu hitastigi, örbylgjum og gufu. Enamelið er ekki gljúpt; yfirborðið er ótrúlega slétt og rispuþolið. Glerjungurinn kemur í veg fyrir að fita festist eða brenni við ofnrýmið, sem bætir hreinleika með tilliti til baktería og auðveldar þrif. Bjartur litur bætir sýn inn í ofninn og stuðla eðliseiginleikar SilverMatte varðandi hitastig að hagkvæmari orkunotkun. Allar bökunarplötur með nýja SilverMatte glerjungnum henta til notkunar í allar gerðir ofna, þar á meðal Gorenje+ og gufuofna.
SuperSize – töluvert stærra eldunarsvæði
Rúmbetri ofnar gerar þér kleift að elda meira magn af mat - ekki aðeins vegna þess að blásturinn er jafn á öllum hæðum, heldur líka þökk sé 46 cm breiðum ofnplötum sem komast fyrir í bæði minni og stærri ofnum frá Gorenje. Framsæknar lausnir tryggja stærra innanrými og fulla nýtingu á breidd ofnsins. Meira rými er til staðar á hverri ofnplötu og tryggir þessi einstaka tækni jafna eldun matvæla á öllum hæðum.
Fylgiskjöl
Tæknilegar upplýsingar
Almennar upplýsingar | |
Vöruflokkur | Rafmagnsofn |
Gerð ofns | Multifunction blástursofn |
Vörulína | Gorenje+ |
Orkunýtingarflokkur | A+ |
Litur | Svartur |
Hráefni innanrými | SilverMatte |
Hurðarhjarir | GentleClose lokun |
Ergonomic stjórntakkar | Já |
HomeMade Plus | Já |
Eiginleikar | |
Elektrónísk hitastýring | Já |
Sjálfvirk kerfi | Já |
StepBake | Já |
SlowBake hægeldun | Já |
Jógúrt kerfi | Já |
Þurrkunar kerfi | Já |
Ljós í ofnrými | Stakar perur í sitthvorri hlið |
Ofnhurð | Slétt gler í innri hurð ofns sem má fjarlægja |
Hægt að elda á mörgum hæðum á sama tíma | Já |
MultiFlow 360° jöfn hitadreifing | Já |
PerfectGrill | Já |
Eldunarkerfi | |
Undir- & yfirhiti | Já |
Yfirhiti | Já |
Undirhiti | Já |
Lítið grill | Já |
Grill | Já |
Grill & vifta | Já |
Undirhiti & heitur blástur | Já |
Heitur blástur | Já |
Undirhiti & vifta | Já |
Hraðhitun | Já |
Halda heitu | Já |
WarmPlate | Já |
Pyrolisis | Já |
AutoRoast | Já |
Þíða | Já |
ECO kerfi | Já |
Sabbath kerfi | Já |
Skilvirkni | |
Nýtanlegt ofnrými | 71 L |
Hámarkshitastig í ofnrými | 300°C |
Þrif | |
PyrolyseSupreme sjálfhreinsikerfi | Já |
Öryggi | |
Barnalæsing | Já |
Köld hurð - UltraCoolDoorQuadro+ | Já |
DC+ kælivifta | Já |
Tæknilegar upplýsingar | |
Tækjamál (BxHxD) | 59,5 x 59,5 x 54,6 cm |
Mál umbúða (BxHxD) | 63,5 x 69,1 x 68 cm |
Innbyggimál (BxHxD) | 56,4 x 59 x 55 cm |
Nettóþyngd | 43,8 kg |
Brúttóþyngd | 48,1 kg |
Orkunotkun (blástur) | 0,691 kWh |
Orkunotkun (undir- & yfirhiti) | 1 kWh |
Heildarafl | 3,400 W |
Afl grills | 2,700 W |
Orkunotkun í biðstöðu | 1 W |
Spenna | 220 - 240 V |
Tíðni | 50 / 60 Hz |
Fylgihlutir | |
Kjarnhitamælir | Já |
Fullútraganlegar brautir | 1 par |
Emeleruð ofnskúffa | 1 |
Emeleruð bökunarplata | 1 |
Ofngrind | 1 |
Glerbakki | 1 |