Collo ofnhreinsir 500 ml.

Vörunúmer: 064

  2.290 kr

Hreinsiefni frá Collo fyrir allar gerðir af ofnum. Ofnhreinsirinn er lyktarlaus og auðveldur í notkun. Hreinsiefnið loðir við óhreinindi, vinnur sig í gegnum þráláta bletti og fjarlægir brenndar matarleifar á árangursríkan hátt. Spreyið efninu í kaldan ofninn og látið standa í 12-24 klst, allt eftir hversu óhreinn ofninn er. Efnið vinnur á óhreinindum og svo er hægt að þrífa ofninn með vatni og mjúkum svampi. Varast skal að láta efnið á viðkvæma fleti í kringum ofninn eða brennsluplötur í baki ofns. Það á ekki að hita ofninn með þessu hreinsiefni, efnið vinnur sjálft á óhreinindum. Virkar vel með svampinum frá Vileda. Brúsinn inniheldur 500 ml.