VACUUM.LID lok fyrir heita lofttæmingu - GN 1/1

Vörunúmer: TG110

Senda fyrirspurn

Sérstakt lok úr ryðfríu stáli með matarheldum silíkon þéttikanti fyrir heita lofttæmingu. Lokið er stærð GN 1/1, 35 mm á hæð og passar á VACUUM.100 bakka og inn í EVEREO® heitan kæli.

 

Eldaðu og lofttæmdu matvæli á meðan þau eru ennþá heit og varðveittu í langan tíma í EVEREO® heitum kæli. Matvælin eru þannig tilbúin til framreiðslu hvenær sem er sólarhringsins. MULTI.Day bakkar eru hannaðir til þess að endast, þeir eru einu bakkarnir sem þola lofttæmingu heitra matvæla án þess að aflagast og þökk sé hágæða þéttikantinum á lokinu tryggja þeir varðveislu lofttæmingar í langan tíma.

 

ELDA
Hægt er að nota bakkana opna undir matvæli sem eru elduð á hefðbundin hátt í ofninum, eða eftir sótthreinsun undir matvæli sem á að varðveita og lofttæma á meðan þau eru ennþá heit.


LOFTTÆMA HEIT MATVÆLI
Þökk sé MULTI.Day Hot vacuum dælunni er hægt að lofttæma MULTI.Day bakkana um leið og þeir koma út úr ofninum á meðan matvælin eru ennþá mjög heit. Ekki er nauðsynlegt að bíða þar til matvælin eru búin að kólna til þess að lofttæma.


MIKIÐ MAGN
UNOX MULTI.Day bakkar eru hannaðir til að varðveita mikið magn af matvælum við framreiðsluhitastig með það í huga að þjónusta fjölda viðskiptavina.

 

Innsigla, elda og varðveita
Þökk sé nýjuginni heitri lofttæmingu hefur þú möguleika á að lofttæma matinn á meðan hann er enn heitur í MULTI.Day bökkunum. Á þennan hátt getur þú varðveitt matvælin í EVEREO® heitum kæli í allt að 72 klst.


Elda, innsigla og flytja
Ertu að flytja heitan mat? Innsiglið MULTI.Day bökkunum í lok eldunarferilsins með MULTI.Day Hot vacuum dælunni á meðan matvælin eru ennþá heit. Tryggðu þannig að meðhöndlun og flutningur matvælanna í innsigluðum og lofttæmdum ílátum sé bæði öruggur og auðveldur

Tengdar vörur