UNOX MULTI.Day HOT vacuum dæla

Vörunúmer: XUC135

Senda fyrirspurn

MULTI.Day HOT vacuum dælan er sú eina á markaðinum sem getur lofttæmt heitan mat. Vacuum dælan gerir þér kleift að fullnýta kosti EVEREO® heits kælis til varðveislu á matvælum og hámarkar gæði á heitum mat í flutningi. Hún er til notkunar með VACUUM.LID, getur lofttæmt bæði heit og köld matvæli og er tæknin einkaleyfisvarin.

 

1 HRAÐI
Þökk sé MULTI.DAY Hot vacuum dælunni, er hægt að lofttæma og innsigla fullhlaðinn gastrobakka af heitum mat á innan við 75 sekúndum.
2 VINNUVISTFRÆÐI
Breið, stöðug botnplata og þægilegt handfang með segli tryggir áhrifaríka og skilvirka notkun.
3 STJÓRNUN
Mælir hlutfall lofttæmingar og miðlar öllum frávikum til að tryggja framúrskarandi varðveislu matvæla.

 

Varðveisla matvæla við framreiðsluhitastig
Notaðu MULTI.Day Hot Vacuum dæluna til að innsigla og lofttæma MULTI.Day bakka fyrir langa varðveislu matvæla í EVEREO® heitum kæli.

 

Flutningur í innsigluðum hitakössum
MULTI.Day Hot vacuum kerfið er einkaleyfisvarið og gerir þér kleift að lofttæma heitan mat í MULTI.Day bökkum og flytja þá hvert sem er, án þess að eiga það á hættu að vökvi leki úr þeim eða eitthvað mengandi frá umhverfinu berist í þá. Öryggi og hreinlæti haldast alltaf í hendur.

 

Varðveisla eins og þú hefur aldrei séð áður – Hvert smáatriði skiptir máli.

  • Sogað um leið: Háhitaþolinn silíkon sogskál
  • Stýring: Skynjar og mælir lofttæmingu
  • Handfang með segullæsingu: Alltaf í lagi og tilbúin til notkunar
  • Þægilegt handfang: Hönnun handfangsins tryggir auðvelda og þægilega notkun. 
  • RGB LED gaumljós: Segir til um stöðu lofttæmingar
  • Bakkar sem passa við: Bæði GN1/1 og GN1/2 MULTI.Day bakkar
  • Ryðfrítt stál: Gert úr gegnheilu, ryðfríu stáli sem auðvelt er að þrífa
  • Stamir fætur: Stamir gúmmítappar úr silíkoni tryggja stöðugleika við uppsetningu á borðplötu
  • Wi-Fi tenging: Innbyggð eining fyrir Wi-Fi og tenging við sérstakt MULTI.Day App

 

Tæknilegar upplýsingar

  • Breidd: 540 mm
  • Dýpt: 430 mm
  • Hæð: 580 mm
  • Þyngd: 12 kg
  • Afl: 0.011 kW
  • Spenna: 110 V
  • Eiginleikar inntaks fyrir þrýstiloft: 5-8 bar | 75-120 psi | 60 l/min | 2.1cf

Tengdar vörur