Jura kaffivél E6 Platinum

Vörunúmer: 15440

  169.990 kr
  Vara væntanleg

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

Nýja E6 – kaffidrykkirnir sem flestir elska, rétt við höndina

Njóttu fullkomins kaffibolla á hverjum degi með E6. Auk hefðbundina svartra kaffidrykkja er, þökk sé Easy Cappuccino, mögulegt að hella upp á þann vinsæla kaffidrykk á einfaldan en fullkominn hátt. Fyrir þá sem vilja kaffidrykkinn sinn enn sterkari er einnig mögulegt að hella upp á cappuccino með því að bæta við auka espresso skoti.

Professional Aroma kvörnin tryggir fullkomna mölun kaffibauna og uppáhellingarferlið laðar fram öll blæbrigði baunanna. Tímalaus og fáguð hönnun kaffivélarinnar passar inn í hvaða umhverfi sem er.

Aukinn ilmur fyrir aukna ánægju
Uppgötvaðu algerlega nýja leið til þess að njóta þinna uppáhalds kaffidrykkja. Auðkennandi eiginleikar Professional Aroma kvarnar eru annars vegar 12.2%* meiri ilmur og hins vegar samfelld gæði mölunar yfir allan þjónustutíma kaffivélarinnar. Rúmfræðin hefur verið fullkomnuð með sérstakri sveigju á skurðflötum keilulaga kvarnarinnar. Það skilar sér í meira hlutfalli af fínum ögnum í kaffikökunni sem aftur tryggir að bragðgæði aukast til muna. 
*Professional Aroma kvörn miðað við hefðbundnar kvarnir
 
 
Fullkominn Cappuccino 
Easy cappuccino gerir þér kleift að njóta dásamlegs cappuccino á auðveldan hátt. Mjólkurstúturinn, sem var sérstaklega þróaður fyrir cappuccino, gerir mjúka og fíngerða mjólkurfroðu sem er frábær viðbót við kaffið og tryggir dásamlega kaffiupplifun. Frábær lausn fyrir cappuccino unnendur.
 
 
Hámarks ánægja á einfaldan hátt 
2.8"  litaskjár, sex vel staðsettir takkar og algerlega nýtt stýrikerfi með gervigreind gera notkun kaffivélarinnar bæði einfalda og þægilega. Hvort sem ætlunin er að hella upp á kaffi, sérstilla vélina samkvæmt persónulegum þörfum eða sinna sjálfskýrandi viðhaldi er notendavæn upplifun tryggð. Vélin er einnig samrýmanleg með J.O.E.®, sem gerir þér kleift að hella upp á kaffidrykki, aðlaga og vista kaffidrykkina eftir þínum smekk og senda þá kaffidrykki sem gestirnir þínir óska sér beint í kaffivélina á auðveldan hátt úr símanum þínum.
 
 
Látlaus glæsileiki

Tímalaust útlit kaffivélarinnar einkennist af línulegri rúmfræði og fáguðum krómuðum áherslum. Vélin passar inn í alls kyns umhverfi og endarspeglar hönnun hennar þá einstöku tækni sem býr að baki látlausa glæsileikanum. Öllum óþarfa er vísvitandi haldið frá, bæði hvað varðar ytra byrði og úrval kaffidrykkja, og athygli notandans dregin að því sem mestu máli skiptir: fullkomnu kaffi.

 

Hönnun og útlit:
Litur - Platínum
Hönnun - Frístandandi
Vörulína - E lína
Skjár - 2.8" TFT litaskjár
Fallrenna fyrir malað kaffi – Já

Úrval drykkja:
1 espresso - Já
2 espresso - Já
1 kaffi - Já
2 kaffi - Já
1 cappuccino - Já
1 cappuccino - Extra skot - Já
1 espresso macchiato - Já
1 Caffè Barista - Já
1 Lungo Barista - Já
1 skammtur mjólkurfroða - Já
Heitt vatn - Já
Fjöldi drykkja - 11
Hægt að nota malað kaffi – Já

Tækni:
Púlsuppáhelling P.E.P.® - Já
Hægt að tengja við snjallsímaforritið J.O.E. - Já Smart Connect sendi þarf að kaupa aukalega
Ilmaukandi for-uppáhelling – Já Intelligent Pre-Brew Aroma System (I.P.B.A.S.©)
3D uppáhellingartækni - Já
Gerð kvarnar - Professional Aroma kvörn úr ryðfríu stáli
Fjöldi kvarna - 1
Uppáhellari  Pressa - 5-16 g
Thermoblock hitakerfi - 1
Vatnskerfi - 1
Dæla - 15 bar
Snjallvatnsfilter - Já, CLARIS Smart
Lætur vita þegar þarf að tæma affallsbakka – Já

Þægindi notanda:
Vatnstankur - 1,9 L
Fjöldi baunatanka - 1
Rúmtak baunatanks - 280 g
Lok á kaffibaunatanki sem verndar ilm og bragð - Já
Kaffikorgur (hámark fjöldi bolla í tank) – 16

Net & snjallsímatengingar:
WiFi Connect - Já
WiFi Connect tengibúnaður fylgir með – Nei

Breytanlegar stillingar notanda:
Stillanlegt magn af vatni í kaffi - Já
Hægt að breyta vatnsmagni í bolla við hverja uppáhellingu - Já
Styrkleiki á kaffi - 10 stig
Hægt að breyta styrkleika á kaffi við hverja uppáhellingu - Já
Hitastig á kaffi - 3 stig
Stillanlegt magn af mjólkurfroðu - Já
Stillanlegt magn af heitu vatni - Já
Hitastig á heitu vatni - 3 stig
Hægt að stilla grófleika mölunar – Já

Hentugt viðhald:
Gerð vatnsfilters - CLARIS Smart
Sjálfvirk skolun kaffistúta - Já
Innbyggt skol-, hreinsi- og afkölkunarkerfi - Já
Sjálfvirk skolun mjólkurstúta - Já
Innbyggt mjólkurhreinsikerfi - Já
Staða viðhalds og umhirðu sjáanleg á skjá - Já
Stillanleg vatnsharka - Já
Hægt að fjarlægja mjólkurleiðslur - Já
Tüv skírteini fyrir hreinlæti – Já

Sjálfbærni og umhverfið:
Orkusparnaðarkerfi - Já
Slökkvir á sér eftir“ stillanlegt - Já, 15 mín - 9 klst
Straumrofi - Já
Orkunýtingarflokkur (A - G) - A
Árleg orkunotkun í kWh - 58,4 kWh

Kaffistútar:
Hæðarstillanlegur kaffistútur - 65-111 mm
Hæðarstillanlegur cappuccinostútur - 65-111 mm
Stútur fyrir heitt vatn - Já
Hæðarstillanlegur stútur fyrir heitt vatn - 65-111 mm
Sameiginlegur stútur fyrir cappuccino og heitt vatn – Já

Tæknilegar upplýsingar:
Hæð - 35,1 cm
Breidd - 28 cm
Dýpt - 44,6 cm
Heildarafl - 1.450 W
Spenna - 220 - 240 V
Rafstraumur – Amper - 10 A
Tíðni - 50 Hz
Þyngd - 9,1 kg
Lengd rafmagnssnúru - 1,1 m
Rafmagnsnotkun þegar slökkt er á kaffivél - 0 W
Mjólkurslöngutengi - HP1 / CX3

Fylgihlutir:
Tankur fyrir mjólkurhreinsikerfi - Já
Kaffiskeið fyrir malað kaffi - Já
Vatnsfilter - Já
Hreinsitöflur - Já
Hreinsiefni fyrir mjólkurleiðslur - Já

 

Tengdar vörur