29.900 kr

Masahiro hnífar eru vinsælir bæði meðal matreiðslumeistara, veitingamanna og ástríðukokka. Vandaðir hnífar eins og þeir eru nauðsynlegir hverjum kokki.

Lengd blaðs: 27 cm

Framleitt: Seki í Japan.

 

Notkun:

Kokkahnífur (Chefs´ knife) er sá eldhúshnífur sem er hvað fjölhæfastur og þar af leiðandi ómissandi í eldhúsið. Alhliða hnífur sem hentar fyrir ýmsa notkun t.d til þess að saxa eða skera kjöt, fisk, grænmeti, hnetur og kryddjurtir. Blaðið er mjótt.

 

Hnífsblað:

Efni í blaði er kolefnisríkt, ryðfrítt stál MBS-26 - MV: Molybdenum Vanadium Stainless steel sem hefur verið sett í þriggja þrepa herðingaferli þar til herslan hefur náð 58-59 HRC.

Bitið helst mjög vel og eggin er flugbeitt. Blaðið er 80/20 sem þýðir að skurðbrúnin færist til hliðar í ás hnífsins. Kostirnir við að nota ósamhverfa "asymmetric" skerpingu eru allt að 35% þynnri skurðbrún miðað við samhverfa "symmetrical"  blaðið, sem gerir það mun skarpara.

Hnífarnir eru handbrýndir. Hvert blað hefur verið yfirfarið af handverksfólki með yfir 30 ára reynslu, sem gerir japönsku Masahiro hnífana einstaklega beitta.

 

Skaft:

Viður BWH: Black Wood Handle = Svart viðar handfang.

 

Gættu að hnífnum þínum!

 

Þrif:

Við þrif í uppþvottavél er hætta á að hnífurinn verði sljór, ryðgaður eða sýruskemmdur. Við mælum því með að þvo hnífinn í höndunum. Þvoið, skolið og þurrkið hnífinn vandlega eftir notkun, sérstaklega eftir að hafa notað mjög súr matvæli.

Ef tréhandfangið fer að dofna - nuddið það þá með smá matarolíu og þá verður hnífurinn eins og nýr.

 

Geymsla:

Til að koma í veg fyrir að hnífarnir missi skerpu sína ætti að geyma þá á réttan hátt. Við mælum með að geyma hnífinn í hnífablokk eða á segulrönd. Ekki má geyma hnífana í hnífaskúffu ásamt öðrum hlutum sem gætu skemmt eggið.

Tengdar vörur