Virkilega falleg og klassísk hnífapör frá WMF Professional. Barock-línan einkennist af efnismikilli hönnun og fallegum, nákvæmum skreytingum í klassískum Barokk-stíl.
Línan er sérstaklega hönnuð fyrir glæsilegt útlit og hentar einstaklega vel fyrir veitingastaði, hótel og fínni veislur.
Helstu eiginleikar Barock-línunnar
Klassísk og glæsileg Barokk-hönnun
Fágað yfirborð
Harðgerð og tæringarþolin
Má fara í uppþvottavél
Efnismikil og vönduð hönnun
Hentar sérstaklega vel fyrir fine dining og fallega uppdekkuð borð
Hönnuð af WMF Atelier
Glæsileg og vönduð eftirréttaskeið úr Barock-línunni. Skeiðin er svipuð hefðbundinni matskeið en aðeins minni og hentar sérstaklega vel fyrir eftirrétti og heita eða kalda forrétti.
Stærð og hlutföll skeiðarinnar gera hana að góðri viðbót við vandaða og glæsilega borðlagningu.
Upplýsingar
Efni: Krómað stál
Yfirborð: Fágað
Lengd: 15,6 cm
Má fara í uppþvottavél: Já
Hönnuður: WMF Atelier
Pakkning: 12 stk. (verðið miðast við 1 stk.)
Vörunúmer WMF: 54.3010.6040