Virkilega falleg og klassísk hnífapör frá WMF Professional. Barock-línan einkennist af efnismikilli hönnun og fallegum, nákvæmum skreytingum í klassískum Barokk-stíl.
Línan er sérstaklega hönnuð fyrir glæsilegt útlit og hentar einstaklega vel fyrir veitingastaði, hótel og fínni veislur.
Helstu eiginleikar Barock-línunnar
Klassísk og glæsileg Barokk-hönnun
Fágað yfirborð
Harðgerð og tæringarþolin
Má fara í uppþvottavél
Efnismikil og vönduð hönnun
Hentar sérstaklega vel fyrir fine dining og fallega uppdekkuð borð
Hönnuð af WMF Atelier
Glæsilegur og vandaður kökugaffall úr Barock-línunni. Gaffallinn er minni en hefðbundinn borðgaffall og hentar sérstaklega vel með kökum, tertum og öðrum eftirréttum.
Falleg Barokk-hönnunin gerir hann tilvalinn fyrir glæsilega kaffiborðið og fínni borðlagningu.
Upplýsingar
Efni: Krómað stál
Yfirborð: Fágað
Lengd: 15,7 cm
Má fara í uppþvottavél: Já
Hönnuður: WMF Atelier
Pakkning: 12 stk. (verðið miðast við 1 stk.)
Vörunúmer WMF: 54.3064.6040