WMF Barock fiskihnífur - Ryðfrítt

Vörunúmer: 54.3036.6040

  1.690 kr
  Vara væntanleg

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

Sérpöntun

WMF Barock

Virkilega falleg og klassísk hnífapör frá WMF Professional. Barock-línan einkennist af efnismikilli hönnun og fallegum, nákvæmum skreytingum í klassískum Barokk-stíl.

Línan er sérstaklega hönnuð fyrir glæsilegt útlit og hentar einstaklega vel fyrir veitingastaði, hótel og fínni veislur.

Helstu eiginleikar Barock-línunnar

  • Klassísk og glæsileg Barokk-hönnun

  • Fágað yfirborð

  • Harðgerð og tæringarþolin

  • Má fara í uppþvottavél

  • Efnismikil og vönduð hönnun

  • Hentar sérstaklega vel fyrir fine dining og fallega uppdekkuð borð

  • Hönnuð af WMF Atelier

 

 

Barock fiskihnífur

Glæsilegur og vandaður fiskihnífur úr Barock-línunni. Fiskihnífurinn er sérstaklega hannaður til að fjarlægja roð og meðhöndla viðkvæmt fiskhold án þess að skemma það.

Hnífurinn er ekki beittur eins og hefðbundinn borðhnífur, sem minnkar hættuna á að skera í gegnum fiskbein. Hann passar sérstaklega vel með Barock fiskigafflinum.

Upplýsingar

  • Efni: Krómað stál

  • Yfirborð: Fágað

  • Lengd: 21,4 cm

  • Má fara í uppþvottavél: Já

  • Hönnuður: WMF Atelier

  • Pakkning: 12 stk. (verðið miðast við 1 stk.)

  • Vörunúmer WMF: 54.3036.6040