Virkilega falleg og klassísk hnífapör frá WMF Professional. Barock-línan einkennist af efnismikilli hönnun og fallegum, nákvæmum skreytingum í klassískum Barokk-stíl.
Línan er sérstaklega hönnuð fyrir glæsilegt útlit og hentar einstaklega vel fyrir veitingastaði, hótel og fínni veislur.
Helstu eiginleikar Barock-línunnar
Klassísk og glæsileg Barokk-hönnun
Fágað yfirborð
Harðgerð og tæringarþolin
Má fara í uppþvottavél
Efnismikil og vönduð hönnun
Hentar sérstaklega vel fyrir fine dining og fallega uppdekkuð borð
Hönnuð af WMF Atelier
Glæsilegur og vandaður fiskigaffall úr Barock-línunni. Fiskigaffallinn er breiðari og flatari en hefðbundinn borðgaffall, sem auðveldar að losa viðkvæmt fiskhold frá beinum.
Hann passar sérstaklega vel með Barock fiskihnífnum og saman mynda þau glæsilegt og vandað sett fyrir fiskrétti.
Upplýsingar
Efni: Krómað stál
Yfirborð: Fágað
Lengd: 19 cm
Má fara í uppþvottavél: Já
Hönnuður: WMF Atelier
Pakkning: 12 stk. (verðið miðast við 1 stk.)
Vörunúmer WMF: 54.3035.6040