WMF Barock borðhnífur - Ryðfrítt

Vörunúmer: 54.3003.6049

  2.290 kr
  Vara væntanleg

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

Sérpöntun
 

WMF Barock

Virkilega falleg og klassísk hnífapör frá WMF Professional. Barock-línan einkennist af efnismikilli hönnun og fallegum, nákvæmum skreytingum í klassískum Barokk-stíl.

Línan er sérstaklega hönnuð fyrir glæsilegt útlit og hentar einstaklega vel fyrir veitingastaði, hótel og fínni veislur.

Helstu eiginleikar Barock-línunnar

  • Klassísk og glæsileg Barokk-hönnun

  • Fágað yfirborð

  • Harðgerð og tæringarþolin

  • Má fara í uppþvottavél

  • Efnismikil og vönduð hönnun

  • Hentar sérstaklega vel fyrir fine dining og fallega uppdekkuð borð

  • Hönnuð af WMF Atelier

 

 

Barock borðhnífur

Glæsilegur og vandaður borðhnífur úr Barock-línunni. Hnífurinn er með örlítið ávölum oddi og tenntu blaði og hentar sérstaklega vel með aðalréttum.

Klassísk Barock-hönnunin gerir hann sérstaklega hentugan fyrir vandaða og glæsilega borðlagningu og passar vel með öðrum hnífapörum Barock-línunnar.

Upplýsingar

  • Efni: Krómað stál

  • Yfirborð: Fágað

  • Gerð: Monobloc hnífur

  • Blað: Tennt

  • Lengd: 23,5 cm

  • Má fara í uppþvottavél: Já

  • Hönnuður: WMF Atelier

  • Pakkning: 12 stk. (verðið miðast við 1 stk.)

  • Vörunúmer WMF: 54.3003.6049