Njóttu þess að hella upp á uppáhalds tebollann þinn
Morgunmatur, eftirmiðdags tetími, stundarpása eða afslöppun að kvöldi til; hvert sem tilefnið er mun Smeg mini hraðsuðuketillinn gera andartakið eftirminnilegt. Lok ketilsins er opnað handvirkt upp í 80° vinkil og auðvelt er að fylla hann af vatni. Mögulegt er að hita upp 0,8 lítra af vatni í einu sem dugar í um það bil þrjá tebolla og lágmarkar þar af leiðandi mögulega vatnssóun. Þökk sé smæðinni er ketillinn tilvalinn fyrir fjölbreyttar aðstæður eins og til dæmis heimaskrifstofur, stofur eða jafnvel hótelherbergi.
Hraðvirkur, öruggur og áreiðanlegur
Innri klæðning hraðsuðuketilsins er úr ryðfríu stáli og hitaleiðni hans þar af leiðandi mjög góð. Skamman tíma tekur að hita vatnið í katlinum upp, hann er hljóðlátur og slekkur sjálfkrafa á sér til öryggis þegar 100°C er náð. Ketillinn er með innbyggðum vatnsfilter úr ryðfríu stáli sem hægt er að fjarlægja og þvo, auk þess stendur hann á praktískri botnplötu með stömum fótum. Mögulegt er að festa rafmagnskapalinn undir botnplötuna, setja ketilinn niður á hana hvernig sem hann snýr og snúa honum í 360° á botnplötunni.