Smeg Kaffivél Espresso Pastel Blá

Vörunúmer: ECF01PBEU

  79.990 kr

Einstaklega falleg espresso kaffivél úr 50´s línu SMEG. Heimilin hafa tekið ítölsku kaffihefðinni opnum örmum og hefur hún sigrað bragðlauka jafnvel kröfuhörðustu kaffiunnenda.

 

Alvöru ítalskur espresso

Reiddu fram alvöru ítalskan espresso, kremaðan cappuccino eða dásamlegan latte macchiato heima hjá þér. Smeg espresso kaffivélin er með Thermoblock hitakerfi sem tryggir bæði hraða upphitun vélarinnar fyrir notkun og nákvæma stýringu vatnshita við gufumyndun, uppáhellingu kaffis og heits vatns. Ofantalið, auk 15 bar dæluþrýstings, skilar fullkomnum espresso kaffidrykkjum í bollann, jafngóðum og þú færð á heimsins bestu kaffihúsum.

 

 

Fjölhæf og notendavæn

Þrír einfaldir takkar eru ofarlega á kaffivélinni; takki fyrir einfaldan espresso, takki fyrir tvöfaldan espresso og takki fyrir gufumyndun til að flóa mjólk. Espresso kaffivélin er með flóunarstút sem gerir þér kleift að mynda þykka og kremaða froðu fyrir cappuccino með því að blanda saman gufu, lofti og mjólk. Ofan á kaffivélinni er falleg plata þar sem fullkomið er að geyma og hita upp espresso kaffibolla áður en hellt er upp á kaffi. Mögulegt er að fjarlægja affallsbakkann með bollastandinum til þess að koma háum bollum fyrir undir kaffistútunum. Einnig fylgja þrír mismunandi filterar með vélinni; filter fyrir malað kaffi (1 bolli), filter fyrir malað kaffi (2 bollar) og filter fyrir kaffipúða. Auk þess minnir kaffivélin þig á hvenær afkölkunar er þörf og hvenær tæma þarf affallsbakka.

 

 

Alþjóðleg verðlaun 

Viðtökur 50´s smátækjanna frá Smeg hafa verið frábærar og hafa þau unnið til fjölmargra alþjóðlegra verðlauna. Smeg espresso kaffivélar hafa hlotið Good Design Awards og Red Dot Design Awards, á meðan Smeg kaffikönnur með filter hafa fengið IF Design Awards.

Notendaleiðbeiningar

Hönnun og útlit

LiturPastel Blár
HönnunFrístandandi
Vörulína50's Retro Style
Stjórntakkar3 takkar + sveif

Úrval drykkja

1 Espresso
2 Espresso
Gufa til að froða mjólk
Fjöldi drykkja3

Tækni

Dæla15 bör
Lætur vita þegar þarf að tæma affallsbakkaJá, flotholt

Þægindi notanda

Vatnstankur1 L
Bollahitari
Stamur botn

Breytanlegar stillingar notanda

Stillanlegt magn af vatni í kaffi
Hitastig á kaffi3 stig

Hentugt viðhald

Innbyggt afkölkunarkerfi
Stillanleg vatnsharka

Sjálfbærni og umhverfið

Orkusparnaðarkerfi
„Slekkur á sér eftir“ stillanlegt
Straumrofi

Tæknilegar upplýsingar

Hæð33,0 cm
Breidd14.9 cm
Dýpt32,9 cm
Heildarafl1.350 W
Spenna220 - 240 V
Rafstraumur - Amper10 A
Tíðni50 - 60 Hz
Þyngd4,7 kg
Lengd rafmagnssnúru1 m

Fylgihlutir

Kaffiþjappari - Kaffiskeið1
Filter 1 bolli1
Filter 2 bollar1
Filter kaffipúði1