Einstaklega fallegur hraðsuðuketill úr 50's línu SMEG. Mögulegt er að velja á milli 7 mismunandi hitastiga, frá 50°C til 100°C, og getur ketillinn haldið vatninu heitu við valið hitastig í allt að 20 mínútur. Ketillinn tekur 1.7 líta af vatni sem dugar í um það bil 7 bolla og hann slekkur sjálfkrafa á sér þegar völdu hitastigi er náð.
Mismunandi tetegundir þarfnast mismunandi hitastigs
Grænt te, ávaxta te eða Oolong te; hvert sem þitt uppáhalds te er gerir hitastýring hraðsuðuketilsins þér kleift að aðlaga vatnshitann að þínum þörfum. Mögulegt er að velja á milli 7 mismunandi hitastiga, frá 50°C til 100°C, og getur ketillinn haldið vatninu heitu við valið hitastig í allt að 20 mínútur. Lok ketilsins er með þægilegri mjúkopnun og auðvelt er að fylla hann með vatni. Hraðsuðuketillinn er rúmgóður, getur hitað upp 1,7 lítra af vatni í einu og er með mælistiku til þæginda sem sýnir vatnsmagn í tækinu.
Hraðvirkur, öruggur og áreiðanlegur
Hraðsuðuketillinn er úr ryðfríu stáli með emileringu og hitaleiðni hans þar af leiðandi mjög góð. Skamman tíma tekur að hita vatnið í katlinum upp, hann er hljóðlátur og slekkur sjálfkrafa á sér til öryggis þegar völdu hitastigi er náð. Ketillinn er með innbyggðum vatnsfilter úr ryðfríu stáli sem hægt er að fjarlægja og þvo, auk þess stendur hann á praktískri botnplötu með stömum fótum. Mögulegt er að festa rafmagnskapalinn undir botnplötuna, setja ketilinn niður á hana hvernig sem hann snýr og snúa honum í 360° á botnplötunni.
Alþjóðleg verðlaun
Viðtökur 50´s smátækjanna frá Smeg hafa verið frábærar og hafa þau unnið til fjölmargra alþjóðlegra verðlauna. Smeg hraðsuðukatlar hafa hlotið Good Design Awards og Red Dot Design Awards.