Smeg Galileo 60 cm ofn ryðfrítt stál

Vörunúmer: SO6302TX

A+
  217.780 kr

Blástursofn með elektrónískri hitastýringu úr Classic línu Smeg. Ofninn er orkunýtinn, með kaldri framhlið og yfirborði úr kámfríu stáli.

 

Smekkleg hönnun sem einkennist af ryðfríu stáli og hreinum línum

Fyrsta vörulínan sem Smeg hannaði í samstarfi við arkítektinn Guido Canali fékk nafnið Classica. Ryðfrítt stál er aðalsmerki línunnar og hvernig það er notað á afskaplega smekklegan og nákvæman hátt. Tækin í Classic línunni eru með einkennandi stjórntökkum og handföngum, sem minna um margt á tæki í atvinnueldhúsum. Þau eru hagnýt og fjölhæf sem endurspeglar, auk glæsilegrar útlitshönnunar, gæði þeirra. Hönnunin einkennist af beinum línum, einföldum formum og er í senn hrein og fáguð. Skemmtilega tímalaus stíll með nútímalegu ívafi sem sómir sér vel í flestum gerðum eldhúsa.

 

 

Elektrónísk hitastýring og einföld þrif

Ofninn er með einföldu og notendavænu stjórnborði, tveimur stjórntökkum og þægilegum skjá með snertitökkum. Elektrónísk hitastýring heldur nákvæmu hitastigi í ofnrýminu og gefur möguleika á fullkominni eldun rétta sem eru viðkvæmir fyrir hitabreytingum. Vapor hreinsikerfið notar gufu til þess að losa um matarleifar og óhreinindi af yfirborði ofnrýmisins, þannig að auðvelt sé að þrífa leifarnar í burtu. Ofnrýmið er með yfirborði úr enameli sem hrindir frá sér fitu og er þolið gagnvart efnum með súra eiginleika. Auk þess er mögulegt að fjarlægja innri gler hurðarinnar og þrífa á milli þeirra. Allt ofantalið auðveldar þína vinnu við þrif á ofninum.

 

 

Aukið öryggi og hámarks þægindi

Blástursofninn er með mjúklokun sem dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Hurðin lokast þar af leiðandi bæði varlega og hljóðlega. Útdraganlegar brautir veita ákjósanlegt aðgengi að matnum í ofninum. Þær gera þér kleift að snúa grænmetinu eða dreypa feiti á steikina á þægilegan hátt og í öruggri fjarlægð frá heitu ofnrýminu. Brautirnar eru hálf-útdraganlegar og auðvelt er að draga plötur og grindur út úr ofninum án þess að eiga á hættu að brenna sig. Ofninn er auk þess með kaldri framhlið og kældur á öllum hliðum sem tryggir að stjórnborð, handföng og aðliggjandi skápar haldast kaldir viðkomu. Allt ofantalið veitir aukið öryggi, þægindi við notkun og verndar gegn bruna.

Vöruupplýsingablað
Innbyggimál
Notendaleiðbeiningar
Orkumiði

Hönnun og útlit

LiturRyðfrítt stál
HönnunInnbyggður blástursofn
Hæð x Breidd60 x 60 cm
VörulínaClassic
HandfangClassic
Litur handfangsRyðfrítt útlit
SkjárLCD skjár
Skjár sýnir tíma dags
Stillingar kerfaStjórntakkar & snertitakkar
Útlit stjórntakkaClassic
Litur stjórntakkaRyðfrítt útlit

Einstök þægindi

Hitastýring25 - 280°C
Elektrónísk hitastýring
Hraðupphitun - Rapid heat-up

Ofnkerfi

Heitur blástur
Undir- og yfirhiti
ECO
Undir- og yfirhiti + Heitur blástur
Undir- og yfirhiti + Blástursvifta
Grill + Blástursvifta
Undirhiti + Heitur blástur
Pizza kerfi
Grill
Undirhiti
Affrysting
Hefun
Pizzasteinn
BBQ
AirFry
Sabbath

Ofnrými

Stærð ofnrýmis68 L
Stærð ofnrýmis - Brúttó78 L
Fjöldi hæða í ofnrými5
Fjöldi halogen ljósa2
Fjöldi blástursviftna1

Hurð

SoftClose
Innanverð hurð alfarið úr gleri
HurðarlamirAð neðan

Þægindi notanda

Sýnir valið hitastig
Hljóðmerki þegar ofnkerfi nær völdu hitastigi
Eldun tímasett
Eldun stillt
Halda heitu
Tímastillir

Hentugt viðhald

Vapor hreinsikerfi
Ofnrými með Ever Clean Enamel
Engin fingraför - Anti-fingerprint

Sjálfbærni og umhverfið

Orkunýtingarflokkur (A+++ - D)A+
Orkusparandi lýsing

Öryggi

Hægt að læsa stjórnborði/barnalæsing
Tækið er útbúið kælibúnaði
Köld framhlið
Fjöldi glerja í ofnhurð3

Tæknilegar upplýsingar

TækjamálSjá undir „fylgiskjöl“
Heildarafl3.000 W
Spenna220 - 240 V
Rafstraumur - Amper13 A
Tíðni50 - 60 Hz
Fjöldi fasa1
Þyngd34,9 kg
Þyngd í pakkningum38,8 kg
Lengd rafmagnssnúru1,5 m

Fylgihlutir

Alhliða ofnskúffa 5 cm djúp1
Bökunarplata 2 cm djúp1
Ofngrind1
Grillgrind - Innlegg í ofnskúffu1
Hálf-útdraganlegar brautir1 par

Tengdar vörur