Einstaklega falleg flóunarkanna úr 50´s línu SMEG. Búðu til fullkomna mjólkurfroðu eða heitt súkkulaði á nokkrum mínútum.

Fullkomin mjólkurfroða eða heitt súkkulaði á nokkrum mínútum
Smeg flóunarkannan er bæði sterkbyggð, hraðvirk og slekkur sjálfkrafa á sér. Mögulegt er að flóa mjólk og búa til fullkomna flauelsmjúka mjólkurfroðu, bæði heita og kalda á nokkrum mínútum. Jöfn hreyfing þeytara ásamt ákjósanlegu forstilltu hitastigi gera þér einnig kleift að laga heitt súkkulaði úr mjólk og súkkulaðispæni á áreynslulausan hátt.

Endalausir kostir fyrir kaffipásuna
Sex mismunandi sjálfvirkar stillingar og manual stilling gera þér kleift að útbúa miklu meira en bara mjólkurfroðu fyrir cappuccino og heitt súkkulaði. Mögulegt er að gera bæði heita og kalda drykki með og án mjólkurfroðu í flóunarkönnunni, allt eftir smekk hvers og eins notanda. Breyttu einfaldlega á milli þeytaranna sem fylgja með og notaðu flóunarkönnuna til þess að búa til te, jurtaseyði eða aðra heita drykki eins og orzo byggkaffi.

Alþjóðleg verðlaun
Viðtökur 50´s smátækjanna frá Smeg hafa verið frábærar og hafa þau unnið til fjölmargra alþjóðlegra verðlauna. Smeg flóunarkönnur hafa hlotið Good Design Awards.
Notendaleiðbeiningar