Smeg Classic blástursofn svartur 60 cm

Vörunúmer: SFP6301TVN

A+
  247.760 kr
  Vara væntanleg

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

Blástursofn með elektrónískri hitastýringu og sjálfhreinsikerfi úr Classic línu Smeg. Ofninn er orkunýtinn, með 10 eldunarkerfum og halógen lýsingu. 

 

Smekkleg hönnun og hreinar línur

Fyrsta vörulínan sem Smeg hannaði í samstarfi við arkítektinn Guido Canali fékk nafnið Classica. Ryðfrítt stál er aðalsmerki línunnar og hvernig það er notað á afskaplega smekklegan og nákvæman hátt. Nýr litur, mattur svartur, er nú kynntur til sögunnar. Tækin í Classic línunni eru með einkennandi stjórntökkum og handföngum, sem minna um margt á tæki í atvinnueldhúsum. Þau eru hagnýt og fjölhæf sem endurspeglar, auk glæsilegrar útlitshönnunar, gæði þeirra. Hönnunin einkennist af beinum línum, einföldum formum og er í senn hrein og fáguð. Skemmtilega tímalaus stíll með nútímalegu ívafi sem sómir sér vel í flestum gerðum eldhúsa.

 

 

Áreynslulaus þrif sem gera lífið auðveldara 

Pyrolytic sjálfhreinsikerfið hitar ofnrýmið upp í 500°C og breytir öllum matarleifum í ösku sem er auðvelt að fjarlægja af yfirborðinu. Þetta auðveldar þrif á ofninum og þýðir að óþarfi er að eyða mörgum klukkutímum í að skrúbba hann að innan með sterkum hreinsiefnum. Ofnrýmið er með yfirborði úr enameli sem hrindir frá sér fitu og er þolið gagnvart efnum með súra eiginleika. Auk þess er mögulegt að fjarlægja innri gler hurðarinnar og þrífa á milli þeirra.

 

 

Köld framhlið og elektrónísk hitastýring 

Ofninn er með elektrónískri hitastýringu sem heldur nákvæmu hitastigi í ofnrýminu og gefur möguleika á fullkominni eldun rétta sem eru viðkvæmir fyrir hitabreytingum. Hann er auk þess kældur á öllum hliðum sem tryggir að stjórnborð, handföng og aðliggjandi skápar haldast kaldir viðkomu. Þetta veitir bæði öryggi og verndar gegn bruna.

Innbyggimál
Notendaleiðbeiningar
Orkumiði
Vöruupplýsingar

Hönnun og útlit

LiturSvartur mattur
HönnunInnbyggður blástursofn
Hæð x Breidd60 x 60 cm
VörulínaClassic
HandfangClassic
Litur handfangsSvartur
SkjárLCD skjár
Skjár sýnir tíma dags
Stillingar kerfaStjórntakkar
Útlit stjórntakkaClassic
Litur stjórntakkaSvartur mattur

Einstök þægindi

Hitastýring30 - 280°C
Elektrónísk hitastýring
Hraðupphitun - Rapid heat-up

Ofnkerfi

Heitur blástur
Undir- og yfirhiti
ECO
Undir- og yfirhiti + Heitur blástur
Undir- og yfirhiti + Blástursvifta
Grill + Blástursvifta
Undirhiti + Heitur blástur
Pizza kerfi
Grill
Undirhiti
Affrysting
Hefun
Halda heitu
Sabbath

Ofnrými

Stærð ofnrýmis70 L
Stærð ofnrýmis - Brúttó79 L
Fjöldi hæða í ofnrými5
Fjöldi halogen ljósa1
Fjöldi blástursviftna1

Hurð

Innanverð hurð alfarið úr gleri
HurðarlamirAð neðan

Þægindi notanda

Tímalengd ofnkerfa
Tímastillir

Hentugt viðhald

Pyrolitic sjálfhreinsikerfi

Sjálfbærni og umhverfið

Orkunýtingarflokkur (A+++ - D)A+

Öryggi

Hægt að læsa stjórnborði/barnalæsing
Tækið er útbúið kælibúnaði
Köld framhlið
Fjöldi glerja í ofnhurð4
Hurð er læst á sjálfhreinsikerfi

Tæknilegar upplýsingar

TækjamálSjá undir „fylgiskjöl“
Heildarafl3.000 W
Spenna220 - 240 V
Rafstraumur - Amper13 A
Tíðni50 - 60 Hz
Þyngd39,2 kg
Þyngd í pakkningum42,9 kg
Lengd rafmagnssnúru1,15 m

Fylgihlutir

Alhliða ofnskúffa 4 cm djúp1
Ofngrind1
Grillgrind - Innlegg í ofnskúffu1

Tengdar vörur