Miele Ryksugu róbót - Scout RX3 HomeVision HD PowerLine

Vörunúmer: SPQL0 Home Vision

  189.990 kr
  Vara væntanleg

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Glæsilegur Scout RX3 ryksuguróbot frá Miele. Róbotinn er með mjög nákvæma þrívíddar rúmskynjun, þökk sé innbyggðum myndavélum. Auk þess skynjar ryksuguróbotinn húsgögn og þrep sem kemur í veg fyrir árekstra og fall fram af brún. Hleðsla ryksugunnar dugir mjög lengi eða í 170 mínútur sem hentar vel fyrir stór herbergi, hægt er að stilla tíma á gangsetningu róbots og endurhleðslutími er 240 mínútur. Mögulegt er að stýra ryksugunni með snjallsíma og horfa á lifandi mynd úr ryksugunni í farsímanum.

 

Öflug þrif með fjórum lykilþáttum 

Áhrifaríkt sog fyrir alls kyns gólf

Sogkerfi ryksuguróbotsins hefur fjóra lykilþætti sem tryggja fyrsta flokks árangur við þrif. 1. Hliðarburstar standa út frá tækinu og flytja gróft ryk undir það. 2. Rúlluburstinn undir tækinu skóflar þessu sama ryki örugglega að fremra sogopinu. 3. Aftara sogopið tryggir að fínt ryk er fjarlægt rækilega af gólfunum. 4. Öflug vifta sér að lokum til þess að rykið lendi örugglega í fjarlægjanlegu boxi ryksuguróbotsins.

 

 

Hornabursti

Hliðarburstar fyrir rækileg þrif

Scout RX3 ryksuguróbotinn kemst alveg inn í öll horn með hliðarburstunum tveimur sem standa út úr tækinu. Burstarnir hreinsa rækilega meðfram öllum brúnum og fjarlægja leiðinda ryk sem safnast þar fyrir. Um leið og Scout RX3 lendir á hindrun, dragast hliðarburstarnir sjálfkrafa inn og tækið heldur leið sinni áfram án tafar.

 

 

3D Smart Navigation

Þrívídd rúmskynjun þökk sé innbyggðum myndavélum

Scout RX3 ryksuguróbotinn er með tveimur myndavélum að framan sem gerir það að verkum að tækið er með mjög nákvæma þrívíddar rúmskynjun. Tækið mælir sjálfkrafa fjarlægðir að hugsanlegum hindrunum og stýrir sér á öruggan hátt í kringum þær. Þetta kemur í veg fyrir skemmdir á húsgögnum og öðrum hlutum. Jafnvel flókin rými eru leikur einn fyrir Scout ryksuguróbot með þrívíddar rúmskynjun.

 

 

"Miele Scout" appið 

Þrifið sérstaklega

Nýja "Miele Scout" appið býður nú upp á ennþá fleiri möguleika fyrir ryksuguróbotinn þinn. Viltu aðeins þrífa ákveðið svæði á heimilinu, eins og t.d. eldhúsið? Veldu það þá einfaldlega sem uppáhaldssvæði í appinu. Auk þess getur þú líka valið ákveðin svæði sem þú vilt síður að róbotinn fari á, t.d. forðast teppi. Scout RX3 mun þá einfaldlega forðast svæðin á meðan á þrifum stendur.

 

 

Home Vision HD

Sjáðu heiminn gegnum augu Scout RX3

HD myndavélarnar tvær sem eru innbyggðar framan á Scout ryksuguróbotinum gera þér kleift að athuga stöðuna hjá tækinu heima í háskerpu gæðum, hvenær sem er og jafnvel þegar þú ert á ferðinni. Þú veist þar af leiðandi alltaf hvar tækið er staðsett. Þú getur einnig fylgst með þrifum í rauntíma út frá sjónarhorni ryksuguróbotsins sjálfs. Stjórnun tækisins með örvatökkunum er hægðarleikur og lifandi myndin úr myndavélunum er að sjálfsögðu dulkóðuð.

 

 

Stanslaust í 170 mín

Hleður sig sjálfur 

Öflug litíum rafhlaða gerir það að verkum að gangtími Scout ryksuguróbots á stakri hleðslu er mjög langur. Þegar hleðslan þrýtur, keyrir tækið til baka í hleðslustöðina og hleður rafhlöðuna upp á nýtt. Að hleðslu lokinni heldur ryksuguróbotinn þrifum sjálfkrafa áfram frá þeim stað sem hann skildi við þau.

 

 

Miele@home 

Snjöll stjórnun gegnum netið

Með nýjunginni Miele@home, getur þú fullnýtt þér alla möguleika Miele tækisins þíns og snjallvætt hversdagslífið enn frekar. Öllum Miele snjalltækjum er hægt að stjórna á þægilegan og öruggan hátt í gegnum netið. Framkvæmd er einföld – hvort sem þú notar Miele appið, talgervil eða innlimar tækið inn í snjalllausnir heimilisins sem eru þegar til staðar. Notkun fer fram í gegnum WiFi router og Miele skýið.

 

 

Home Mapping

Sýndarkort af heimilinu

Scout RX3 fer á kerfisbundinn hátt yfir allt rýmið og býr til sýndarkort af svæðinu. Að nokkrum yfirferðum loknum getur ryksuguróbotinn fundið bestu leiðina fyrir áhrifarík þrif. Mögulegt er að sjá rauntíma staðsetningu ryksuguróbotsins á sýndarkortinu með appinu, auk upplýsinga um hvar þrif hafa þegar átt sér stað.

 

 

Tímastilling

Tímasettu hvenær dags er ryksugað 

Mögulegt er að tímastilla þrif Scout ryksuguróbotsins. Þú getur til dæmis stillt róbotinn þannig að tækið ryksugi á meðan þú ert að heiman. Ryksuguróbotinn hefur þannig þrif á fyrir fram stilltum tíma. Tækið fer síðan sjálft aftur í hleðslustöðina til þess að endurhlaða rafhlöðuna. Njóttu frelsisins og farðu út á meðan Scout ryksuguróbotinn þrífur heimilið þitt.

 

 

Fjarstýring

Stjórnaðu ryksuguróbotinum með fjarstýringu

Mögulegt er að stjórna Scout ryksuguróbotinum með þægilegri fjarstýringu. Bæði er hægt að ræsa sjálfvirkt kerfi róbotsins og einnig stýra tækinu með einföldum skipunum beint inn á ákveðið svæði sem þarf að hreinsa ítarlega.

 

 

Snertistjórnun 

Einföld og snjöll notkun

Þú getur stýrt Miele ryksuguróbotinum á mjög einfaldan hátt. Mögulegt er að velja kerfi sem hentar og ræsa tækið með einungis tveimur snertingum á skírum snertiskjá á stjórnborðinu. Scout ryksuguróbotinn sér síðan sjálfur um framhaldið. Að öðrum kosti, getur þú til þægindaauka gefið skipanir með fjarstýringunni þar sem þú situr í stól eða sófa.

 

 

AirClean Plus útblástursfilter

Fyrir hreint og heilnæmt andrúmsloft

AirClean Plus filterinn tryggir að rykið sem hefur verið ryksugað upp haldist þar sem það á heima: í tilheyrandi boxi ryksuguróbotsins. Áhrifarík filtrun tryggir hreinan útblástur og þar af leiðandi heilnæmt andrúmsloft í herberginu.

 

 

Flöt hönnun

Fer auðveldlega undir sófann

Nettur og flatur Scout ryksuguróbotinn ferðast lipurlega um heimilið þitt. Hann fer auðveldlega undir lág húsgögn og nær einnig til annarra staða á heimilinu sem eru alla jafna úr alfaraleið. Það hefur sjaldan verið jafn auðvelt að tryggja þrifnað undir rúmum, skenkum og sófum.

 

 

Farið yfir á teppi

Fer örugglega yfir brúnir og rafmagnskapla

Scout ryksuguróbotinn hefur fullkomið vald á því að fara af sléttum gólfum yfir á teppi. Öflugur mótor og hjól sem renna ekki til gera umskiptin fyrirhafnarlaus og án nokkurra vandræða. Jafnvel þröskuldar raska ekki jafnvægi ryksuguróbotsins. Þú getur þar af leiðandi verið viss um að Miele ryksuguróbotinn mun fylgja sinni leið örugglega og þrífa heimilið þitt á áhrifaríkan hátt.

 

 

Tækni sem verndar húsgögn

Engin hætta á að ryksuguróbotinn klessi á og velti um koll

Scout ryksuguróbotinn er með sjö skynjurum að framan sem skynja húsgögn og aðrar hindranir á veginum. Hann nálgast þessar hindranir varlega til þess að geta þrifið gólfið beint fyrir framan þær. Þannig kemst róbotinn örugglega hjá árekstrum. Þrír aðrir skynjarar eru undir ryksuguróbotinum sem skynja tímanlega öll þrep á gólfinu auk þess að koma í veg fyrir að Scout ryksuguróbotinn falli fram af brún.

Hönnun og útlit

LiturSvartur og Rósagylltur
HönnunRyksuguróbót
VörulínaScout RX3

Tækni

3D Smart Navigation
Tækni sem verndar húsgögn

Ryksugukerfi

Fjöldi ryksugukerfa4
Sjálfvirkt kerfi
Staðbundið kerfi
Öflugt kerfi
Hljóðlátt kerfi
Handstýrð ryksugun
Hægt að tímasetja hvenær dags er ryksugað

Filterar, ryksugupokar og ryksugutankar

ÚtblástursfilterAirClean Plus filter
Rúmtak tanks fyrir ryk0,4 L

Net & snjallsímatengingar

Home Mapping*
Mobile Control
Home Vision*

Hentugt viðhald

4 þrepa hreinsikerfi
Hornabursti

Tæknilegar upplýsingar

Hæð8,5 cm
Þvermál35,4 cm
Þyngd3,2 kg
Samfelldur gangtími
170 mín
Endurhleðslutími
240 mín
Hámarkshæð teppa sem ryksuga fer uppá1,7 cm
Gerð rafhlöðuLi-ion
Geymslurými rafhöðu í mAh5.200 mAh

Fylgihlutir

ÚtblástursfilterAirClean Plus filter
Fjarstýring
Hleðslustöð
Straumbreytir
Afmörkun svæðaMeð segulborða
HliðarburstarInnbyggðir
Fjöldi filtera1

Tengdar vörur