Ryksuga með poka sem tilheyrir Guard S1 vörulínu Miele. Sogkraftsstillingar eru fjórar og skipt er á milli þeirra með snúningsrofa. Hún er einstaklega fyrirferðarlítil, bæði létt og nett, aðeins H: 230 mm x B: 425 mm x D: 245 mm og 6,0 kg með öllum fylgihlutum. Hjólabúnaðurinn er með 360° hreyfanleika og þar af leiðandi er mjög auðvelt að draga ryksuguna eftir gólfinu. Parketbursti með mjúkum hárum fylgir aukalega en hann er fullkominn fyrir parket og hörð gólf. Einnig fylgir löng sveigjanleg kverkaspíss sem hentar vel til þess að ná til erfiðra staða, svo sem inn í örmjó skot og sprungur. Hefðbundnu stútarnir, áklæðabursti, húsgagnabursti og kverkaspíss eru utanáliggjandi og mögulegt að festa þá á ryksuguna.

Tækninýjungar leiða til meiri nákvæmni
Öflug þrif
Miele Guard ryksugan sameinar hámarks sogkraft og ótakmarkaðan notkunartíma - fullkomið fyrir stór svæði. Gagnger þrif eru tryggð með öflugri viftu, ákjósanlegri loftrás og ryksuguhaus. Ný ComfortFit tækni við festingu ryksugupoka ásamt öflugum útblástursfilterum, skila sér í fyrsta flokks frammistöðu og hreinlæti - og þú nýtur góðs af áreiðanlegum og öflugum þrifum.

Hámarks hreinlæti
Kerfi filtera með ComfortFit
Tækninýjungar bæði á filterum og ryksugupokum gera þér kleift að njóta alhliða hreinlætis á heimilinu - þar sem afköst filtrunar eru 99,99% *. ComfortFit gerir það að verkum að sérstaklega auðvelt er að setja ryksugupoka í vélina. Örugg lokun á milli ryksugupoka og ryksugunnar sjálfrar tryggir að ekkert ryk sleppur fram hjá og að hægt sé að skipta um ryksugupoka á einstaklega hreinlátan hátt. Auk þess eru nýju ryksugupokarnir gerðir úr meira en 80% endurunnu efni.
* Samkvæmt IEC 62885-2 við notkun Miele tækis með AirClean filter

Fyrirferðarlítil og létt
Nett hönnun
Ryksugan er tilvalin fyrir minni heimili og er einstaklega auðveld í notkun og meðförum vegna þess að hún er bæði fyrirferðalítil og aðeins 5,6 kg. Nett stærð ryksugunnar tryggir auk þess að auðvelt er að geyma hana í litlum rýmum og spara með því dýrmætt pláss.


Fullkomið fyrir staði sem erfitt er að komast að
Sveigjanlegur XL kverkastútur
XL kverkastúturinn gerir þér kleift að hreinsa djúp op og mjóar sprungur. Hann er sérstaklega langur eða 55 cm sem gerir þér kleift að ná til erfiðra staða og fjarlægja óhreinindi á auðveldan hátt. Kverkastúturinn passar á allar Miele ryksugur og eykur þægindi við þrif.

Fer vel með gólfefni
Parket Twister ryksuguhaus
Miele Parket Twister ryksuguhaus er fullkominn fyrir áreynslulaus þrif á viðkvæmum hörðum gólfefnum. Ryksuguhausinn er mjög meðfærilegur og sveigjanlegur og hann er með mjúkum, náttúrulegum hárum sem renna yfir gólfefnið án þess að rispa það.

Fljótleg þrif á hvers kyns gólfefnum
FiberTeQ alhliða ryksuguhaus
Hágæða alhliða FiberTeQ gólfhausinn gerir þér kleift að ryksuga öll gólfefni á þægilegan og varlegan máta. Hann er praktískur, rennur mjuklega og áreynslulaust yfir bæði hörð gólf og teppi, og fjarlægir hár á gagngeran hátt. Gólfefni sem eru viðkvæm fyrir rispum eru varin og hreinsuð varlega.

Viðeigandi ryksugupokar
HyClean Pure TU
HyClean Pure TU ryksugupokarnir eru hannaðir til að passa fullkomlega í Guard L1 ryksuguna og tryggja framúrskarandi afköst og skilvirkni. ComfortFit tækni tryggir örugga lokun milli ryksugupoka og ryksugunnar sjálfrar þegar ryksugupokinn er festur í vélina. Tæknin sér til þess að allt ryk haldist inni í kerfinu sem aftur tryggir hámarks filtrun.

AirClean Plus filter fyrir framúrskarandi loft innandyra
AirClean Plus filter
AirClean Plus filterinn fangar ryk örugglega og tryggir skilvirka síun fyrir sérstaklega hreint loft innandyra.