Miela Ryksuga DuoFlex HX1 PowerLine - Blá

Vörunúmer: SQLL0B

  79.990 kr

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Snúrulaus skaftryksuga frá Miele með öflugri Vortex tækni. Mögulegt er að breyta samsetningu Duoflex ryksugunnar eftir þörfum og er hún í raun 2 tæki í 1. Skaftryksugan er jafn öflug og hefðbundnar ryksugur, hún er með Li-ion rafhlöðu og samfelldan gangtíma allt að 55 mínútum. Útblástursfilter tryggir heilnæmt andrúmsloft og breiður rafmagnsryksuguhaus hentar fyrir allar gerðir gólfefna.

 

Löng ending rafhlöðu fyrir daglega notkun

Gangtími

Dagleg þrif verða áreynslulaus þökk sé afkastamikilli Lithium-ion rafhlöðu. Gangtími er allt að 55 mínútur á MIN stillingu með PowerUnit eingöngu án rafmagnsryksuguhauss. Á MAX stillingu með rafmagnsryksuguhaus nær Duoflex HX1 gangtíma sem er um það bil 12 mínútur á hörðu gólfefni. Tilvalið fyrir svæði sem eru allt að 60 m² að stærð.

 

 

Fyrir hvaða gólfefni sem er: hagnýtt, snjallt, skilvirkt

MultiFloor rafmagnsryksuguhaus

Þökk sé nýstárlegri tækni greinir snjalli MultiFloor rafmagnsryksuguhausinn sjálfkrafa gerð gólfefnis og aðlagar hraða rúlluburstans eftir yfirborðinu - skilvirkur sogkraftur og bestu mögulegu þrif hvar sem þú ert.

 

 

Öflugur sogkraftur

Digital Efficiency Mótor

Stöðug skilvirkni og mikill kraftur: Nýjasta tæknin á bak við Digital Efficiency Mótorinn tryggir framúrskarandi sogkraft með lágmarks orkunotkun. Þægilega léttur mótorinn mun heilla þig með afburða þrifum á öllum gerðum gólfefna.

 

 

Sveigjanleiki í daglegri notkun

Sveigjanleg notkun

Mögulegt er að aðlaga Miele Duoflex ryksuguna eftir þörfum með að nota fjölbreytt úrval fylgihluta og með því að breyta samsetningu ryksugunnar. Notaðu Duoflex með rafmagnsryksuguhaus til að ryksuga gólfið eða PowerUnit með sogröri til þess að þrífa loftið. Einnig er hægt að nota PowerUnit eitt og sér til dæmis til þess að þrífa húsgögn. Duoflex býður upp á lausn á hvaða áskorun sem er.

 

 

Tæming með einum takka

Auðvelt í þrifum

Afar einfalt er að tæma tankinn fyrir grófa rykið, þökk sé Click2open. Eina sem þarf að gera er að ýta á takka og tankurinn tæmist neðan frá ofan í fötu sem sem sett er undir. Hreinlæti er sérstaklega mikið vegna þess að engin snerting á sér stað við rykið á  meðan á tæmingu stendur.

 

 

Óaðfinnanleg samþætting við þína innanhússhönnun

Hönnun fyrir lífið

Duoflex HX1 er ekki bara öflug ryksuga, hún er líka einstaklega fögur allt niður í minnstu smáatriði. Þökk sé þessari fallegu og nútímalegu hönnun er vel við hæfi að finna ryksugunni áberandi stað á heimilinu. Að finna stað til að fela ryksuguna er liðin tíð. Nútímalegir, stílhreinir litir og gæði áferðar yfirborðs gera Miele Duoflex HX1 skaftryksuguna að sannkölluðum hönnunargrip sem sómir sér vel hvar sem er á heimilinu. 

Notendaleiðbeiningar

Hönnun og útlit

LiturBlár + Hvítur
HönnunSkaftryksuga
Hæð1250 mm
VörulínaDuoflex HX1
MótorDigital Efficiency Mótor

Tækni

Vortex tækni

Þægindi notanda

StjórnborðTakkar
Fjöldi sogkraftsstillinga2 stillingar
Rafmagnsryksuguhaus

Filterar, ryksugupokar og ryksugutankar

ÚtblástursfilterHygiene Filter
Rúmtak tanks fyrir gróft ryk0,3 L
ComfortClean

Sjálfbærni og umhverfið

Orkunotkun í W160 W
Hljóðstyrkur79 dB (A) re 1 pW

Tæknilegar upplýsingar

Breidd260 mm
Spenna25,2 V
Þyngd3,1 kg
Samfelldur gangtími á lægsta afli án rafmangsbursta og skafts
allt að 55 mín
Afkastageta í m²60 m²
Endurhleðslutími
210 mín
Gerð rafhlöðuLi-ion
Geymslurými rafhöðu í mAh2.500 mAh

Fylgihlutir

Áklæðabursti
Kverkaspíss
Húsgagnabursti með gervihárum
Veggfesting1