Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður
Orkunýtin, þægileg og sterkbyggð ryksuga úr C3 Eco línu Miele. Ryksugan er bæði með fótstigsrofum til þess að auka og minnka sogkraft auk fótstigsrofa fyrir snúru sem dregst öll inn í einu þegar ýtt er á hann. Þetta gerir það að verkum að óþarfi er að beygja sig mikið niður við notkun ryksugunnar sem gerir hana einstaklega þægilega í notkun. DynamicDrive hjólabúnaður ryksugunnar er einstaklega þægilegur. Mjúk gúmmíhjólin eru bæði slitsterk og endingargóð og með 360° hreyfanleika. Ryksuguhausinn hentar fyrir allar gerðir gólfefna. Áklæðabursti, húsgagnabursti og kverkaspíss fylgja einnig með og eru fylgihlutirnir staðsettir inni í ryksugunni.

Silence System Plus
Ryksugaðu á hljóðlátan og afslappandi hátt
Vifta Complete C3 Silence er með viðbótar einangrun sem gerir ryksuguna notalega hljóðláta.
-min.jpg)
Sjálfvirk upprúllun rafmagnssnúru með einni snertingu
Án allra óþæginda sem fylgja því að grúfa yfir ryksugunni
Auðvelt er að rúlla rafmagnssnúru ryksugunnar upp með fótstigsrofa og óþarfi að grúfa yfir henni. Ekki er þörf á að halda inni fótstigsrofanum, heldur er nóg að stíga einu sinni á hann til þess að rúlla allri rafmagnssnúru ryksugunnar upp.

Handhægar læsingar
Ótrúlega öruggt með aðeins einum smelli
Greinilegur smellur heyrist í læsingum á milli ryksuguhauss, ryksugurörs og handfangs. Allir hlutar læsast örugglega en þó er mögulegt að losa þá auðveldlega frá hvor öðrum með einum hnappi, ef til dæmis á að festa annan ryksugubursta á ryksugurörið.

Mjúk gúmmíhjól með stálöxli
Jafn lipur og sportbíll
Ryksugan er með DynamicDrive hjólabúnaði sem er einstakur. Mjúk gúmmíhjólin eru bæði slitsterk og endingargóð. Þau geta snúist í 360°, eru fest með stálöxli og eru einnig með dempurum. Ryksugan er þar af leiðandi mjög lipur, hjólabúnaðurinn verndar viðkvæm gólfefni og auk þess er einstaklega hljóðlátt að draga ryksuguna á eftir sér.

Sett af 3 ryksuguburstum
Alltaf við höndina
Sett af 3 hágæða ryksuguburstum fylgja með ryksugunni: áklæðabursti fyrir t.d. sófa, kverkaspíss til þess að komast í kverkar og á milli þröngra hluta og húsgagnabursti með náttúrulegum hárum. Ryksuguburstarnir eru annað hvort staðsettir inni í ryksugunni í sérstöku hólfi eða utanáliggjandi á VarioClip festingu, alltaf við höndina á meðan ryksugað er.

Festing fyrir ryksugurör þegar gera þarf hlé á ryksugun
Auðvelt í notkun
Ryksugan er með festingu fyrir ryksugurör að aftan. Ryksuguhausnum er einfaldlega krækt í festinguna, stálrörið er þar í öruggri stöðu og tilbúið til notkunar aftur hvenær sem er.

Comfort compact stálrör úr ryðfríu stáli
Fullkomin vinnuhæð fyrir hvern og einn notanda
Þú getur stillt Compact stálrörið þannig að ryksugun fari fram í nákvæmlega þeirri vinnuhæð sem þér hentar. Þægilegt er að stytta og lengja stálrörið og það læsist á öruggan hátt með greinilegum smelli í þeirri hæðarstillingu sem valin er. Stækkun stálrörsins eykur magn loftflæðis um ryksuguna og styður þar með við frábær þrif. Gúmmí lag sem er á efri enda Comfort compact stálrörsins er mjög praktískt, rörið rennur t.d. ekki niður ef því er hallað upp að vegg.

Mjúkur borði umhverfis ryksugu
Verndar bæði húsgögn og veggi
Mjúkur borði úr gerviefni er umhverfis ryksuguna. Þegar tilviljunarkenndir árekstrar eiga sér stað við ryksugun verndar borðinn húsgögn, veggi og ryksuguna sjálfa gegn skemmdum.