Klassískur 90 cm breiður eyjuháfur frá Smeg úr ryðfríu stáli. Háfurinn er með hlutlaust útlit og sérstaklega hannaður til þess að passa við fjölbreytt úrval eldhústækja.
Breytileg loftrás
Mögulegt er að nota eyjuháfinn annað hvort til útblásturs eða í hringblæstri. Eyjuháfur sem er settur upp til útblásturs dregur að sér lykt og gufu sem myndast við matreiðslu og knýr út úr húsinu. Fullkomin loftskipti eiga sér þannig stað í eldhúsinu. Háfnum má breyta í hringrásandi háf með hringrásarsetti og kolafilter. Í hringblæstri dregur háfurinn að sér lykt og gufu, knýr loftið í gegnum kolafilter sem hreinsar það og skilar hreinsuðu loftinu aftur inn í eldhúsið.
Öflugur háfur
Háfurinn er með aflaukandi booster stillingu sem er hægt að velja ef eldamennskan kallar á það. Þá sogar háfurinn til sín mikla lykt og gufu, til dæmis ef verið er að búa til hvissandi wokrétt í pönnu eða lyktarmikinn karrýrétt. Alger hreinsun lofts næst með því að láta háfinn ganga áfram að eldun lokinni, en mögulegt er að stilla háfinn þannig að hann slökkvi sjálfvirkt á sér 10 mínútum eftir eldun.
LED lýsing
Háfurinn er með LED ljósum sem eru endingargóð, hagkvæm og lýsa vinnuflötinn undir háfnum fullkomlega upp. Lýsing háfsins er algerlega óháð viftunni og þar af leiðandi er mögulegt að skapa fallega umhverfislýsingu með háfnum í eldhúsinu.