Hvítlauksrifjárnið frá Microplane er á sleða svo þú þurfir ekki að snerta hráan hvítlaukinn með fingrunum. 2-3 afhýddir hvítlauksgeirar eru settir í lítið hólf og lokinu er komið fyrir ofan á þeim. Lokinu er því næst rennt fram og til baka á rifjárninu og niðurrifinn hvítlaukurinn ratar beint ofan í lítið hólf. Þá fylgir enn fremur lítil skafa sem gerir þér kleift að skafa allan hvítlaukinn upp úr hólfinu.
Það má setja hvítlauksrifjárnið í uppþvottavél en við mælum með að skola það strax með vatni.