MAGIMIX blandari krómaður - mattur

Vörunúmer: 11630

  49.990 kr

Magimix Blandari - Power Blender
Öflugur og hljóðlátur blandari frá Magimix sem er nauðsynlegur í öll eldhús. 
Hitaþolin glerskál sem tekur 1,8 L og fjórar hraðastillingar á jöfnum hraða.
Blandarinn er einnig með fjögur forstillt kerfi, fyrir eftirrétti, ís, súpur og smoothie. 
Einfaldur og þægilegur í notkun,  með mjúkri ræsingu.

Blendermix® og Cold Mix® tækni
Blandarinn frá Magimix gerir þér kleift að búa til allt frá kokteilum, smoothies
og mjólkurhristingum til flauelsmjúkrar súpu og deigs fyrir pönnukökur.
Blandarinn er gæddur fullkominni tækni sem Magimix er með einkaleyfi fyrir.
Hönnun hnífs og skálar vinna fullkomlega saman sem skilar sér í silkimjúkum blöndum þökk sé
Blendermix® tækni. Cold Mix® tækni blandar hráefnunum saman án þess að hita þau og
þar af leiðandi varðveitast bæði næringarefni og eiginleikar hráefnisins mjög vel.
Hraða blandarans er hægt að velja á stigvaxandi skala og turbo púlsvirkni gerir þér kleift
að ná silkimjúkri kremaðri lokaáferð.

Mulinn klaki, smoothies, súpa eða ís
Blandarinn er með fjórum forstilltum kerfum. Forstillt kerfi fyrir mulinn ís er tilvalið til þess
að mylja klaka fyrir kokteila. Flauelsmjúkar súpur, bæði heitar og kaldar er hægt að búa
til á forstilltu súpukerfi. Forstillt smoothies kerfi hentar fullkomlega til þess að blanda saman
vökva og búa til smoothie, kokteila og mjólkurhristinga. Dásamlegan ís er síðan hægt að búa
til með því að mauka bæði hráefni á föstu formi og vökva á forstilltu kerfi fyrir ís og eftirrétti.

Öflugur, sterkbyggður og hljóðlátur
Blandarinn er mjög öflugur, snúningshraði er á bilinu 600-22.000 rpm og ræsing er mjúk.
Hann er bæði auðveldur í notkun og þrifum. Skál blandarans er úr Borosilicate gleri, tekur 1,8 lítra,
er mjög endingargóð og hitaþolin. Þar af leiðandi er ekkert mál að skipta á milli þess að
mylja ís og blanda heita súpu án þess að skemma skálina.
Blandarinn frá Magimix er auk alls þessa hljóðlátur og hefur fengið Quiet Mark verðlaun
því til staðfestingar. Magimix blandarar eru sterkbyggðir fyrir lengri endingu.

Notendaleiðbeiningar

Hönnun og útlit
Litur                           Matt og krómaður
Vörulína                     Le Blender
Snúningsrofi              Já
Stjórnborð                 3 takkar: Stop, auto og pulse

Stillingar
Aflstillingar               Stigvaxandi afl
Klaki – Ísmolar         já
Smoothies                já
Súpur                       já
Ís – eftirréttir            já

Afkastageta                        
Klakar                     300 g / c.a 15 – 20 stk
Smoothies              1,8 ltr
Súpur                     1,8 ltr
Mjólkurhristingur    1,8 ltr

Skál og gæði
Glerskál                   1,8 ltr
Hráefni skálar          0% BPA
Hitaþolin skál           já

Tækni
Blendermix –           Hönnun hnífs og skálar vinna fullkomlega
                                   saman sem skilar sér í silkimjúkum blöndum.
Cold mix -                 Blandar án þess að hita matvælin upp í leiðinni.
           
Þægindi notanda
Púls takki                              já
Lok með millilítramáli            já
Mjúk ræsing                         já

Tæknilegar upplýsingar
Hæð                           40,5 cm
Breidd                        16,5 cm
Dýpt                           16,5 cm
Heildarafl                  1.300 W
Snúningar á mínútu – rpm 600 – 22.000 rpm
Spenna                      220 – 230 V
Þyngd                        4,8 kg

Fylgihlutir
Spaði til að þrífa     já 1 stk
Uppskriftarbók       já


 


 

Tengdar vörur