Jura kaffivél S8 Piano Black EB

Vörunúmer: 15482

  349.990 kr

Tækninýjungar og dekur í fágaðri heild

Stílhrein S8 kaffivélin gleður bæði kaffiunnendur og handverksunnendur. Með sinni skúlptúrlegu hönnun, hágæða hráefni og miklum framleiðslugæðum, talar vélin inn í hóp fólks sem hefur frábæran smekk. Nýstárleg tækni vélarinnar skilar sér í því að þú getur nú notið fjölmargra, einstaklega dásamlegra kaffidrykkja með einni snertingu.

Sweet Foam tækni gerir þér kleift að upplifa alveg nýjan bragðheim kaffidrykkja, með því að bragðbæta mjólkurfroðu með sírópi við uppáhellingu. 4.3” lita- og snertiskjár kaffivélarinnar er einstaklega notendavænn, og fyrir hámarks hreinlæti er hægt að velja þrif á mjólkurleiðslum vélarinnar með einni snertingu. Þegar vélin er tengd Wi-Fi á heimilinu, getur þú einnig nýtt þér JURA Operating Experience (J.O.E.®) sem er ókeypis og uppfært reglulega.

Sírópsbætt mjólkurfroða til að töfra fram nýjustu kaffidrykkina

Sweet Foam tæknin bragðbætir mjólkurfroðuna við uppáhellingu. Þegar mjólkin er hituð og freydd, skammtar vélin sírópi á sama tíma jafnt út í mjólkurfroðuna úr sírópshylkinu. Úr verður varlega sírópsbætt mjólkurfroða með flauelsmjúkri áferð sem tekur kaffinautn upp á annað stig. S8 getur, með þessari aðferð, jafnvel útbúið vinsæla kaffidrykki eins og Sweet Latte með einni snertingu og tryggir einnig að hitastig mjólkurfroðunnar sé fullkomið í hvert sinn. One-Touch hreinsun mjólkurkerfis er einnig einstaklega þægileg, sett af stað með einni snertingu og fullkomnar Sweet Foam upplifunina.

 

 

Nýstárleg tækni fyrir stöðuga ánægju

Hágæða hráefni og besta mögulega aðferð við uppáhellingu eru lykilatriði þegar kemur að  gallalausum kaffibolla. Önnur kynslóð Professional Aroma kvarnar (P.A.G.2) skilar jöfnum gæðum mölunar fyrir sérhvern bolla. P.A.G.2 kvörnin fer í hvíldarstöðu bæði fyrir og eftir hverja uppáhellingu og mögulegt er að stilla grófleika mölunar hvenær sem er. Þetta bætir bæði afköst og endingu kvarnarinnar. Áttunda kynslóð 3D uppáhellara tryggir auk þess fullkomnar aðstæður við uppáhellingu og einkar ljúffenga niðurstöðu. Þessir eiginleikar sameinast í þessari framúrskarandi sjálfvirku kaffivél, sem hellir upp á frábært kaffi með miklum gæðum yfir allan þjónustutímann.

 

 

Snjallt viðmót fyrir hámarks þægindi við notkun

Notendaviðmót S8 kaffivélarinnar er skírt og skilst auðveldlega. Stór 4.3” snertiskjár auðveldar notandanum að fletta í gegnum valmyndina og velja hinar ýmsu stillingar og drykki til að hella upp á. Viðmótið er fullkomlega auðskiljanlegt, með grafík og hreyfimyndum sem sýna hvert skref í uppáhellingarferlinu. Hönnun skjásins endurspeglar eftirtektarverðan, auðkennandi stíl vélarinnar og býður upp á einfalt notendaviðmót fyrir áreynslulausa notkun.

 

 

Hágæða kaffivél með skúlptúrlegri hönnun

Hönnun S8 kaffivélarinnar er klassísk. Hún einkennist af hreinum línum, hágæða hráefnum og nákvæmu handverki og mun hönnun hennar enn eiga við jafnvel eftir margra ára notkun. Hún sameinar í eina heild og á glæsilegan hátt, alla útlitseiginleika nettra kaffivéla og bestu eiginleika kaffivéla úr lúxus flokki. Þessi kaffivél er veisla fyrir augað og mun einnig gleðja bragðlaukana með dásamlega ljúffengum kaffidrykkjum.

Hönnun og útlit

LiturSvartur - Piano black
HönnunFrístandandi
VörulínaS lína
Skjár4,3" TFT lita- og snertiskjár
Lýsing í kaffibollaJá
Fallrenna fyrir malað kaffi
já

Úrval drykkja

1 EspressoJá
1 Espresso doppio
Já
2 EspressoJá
1 KaffiJá
2 KaffiJá
1 Americano
Já
1 CappuccinoJá
1 Cappuccino - Extra skot
Já
1 Cappuccino - Sweet FoamJá
1 Caffè latte extra shotJá
1 Caffè latte - Sweet FoamJá
1 Flat whiteJá
1 Flat White - Extra skot
Já
1 Flat White - Sweet FoamJá
1 CortadoJá
1 Cortado Sweet FoamJá
1 Espresso macchiatoJá
1 Espresso macchiato - Sweet FoamJá
1 Latte macchiatoJá
1 Latte macchiato - Extra skot
Já
1 Latte macchiato - Sweet FoamJá
1 Sweet LatteJá
1 Sweet Latte extra shotJá
1 Lungo
Já
1 skammtur mjólkurfroðaJá
1 skammtur mjólkurfroða Sweet FoamJá
1 skammtur mjólkJá
1 skammtur mjólk Sweet FoamJá
Heitt vatnJá
Fjöldi drykkja27
Hægt að nota malað kaffiJá

Tækni

Sæt mjólkurfroða - Sweet FoamJá
OneTouch kaffidrykkir með mjólk
Já
Púlsuppáhelling P.E.P.®
Já
OneTouch LungoJá
Hægt að tengja við snjallsímaforritið J.O.E.
Já
3D uppáhellingartækni
Já
Gerð kvarnarP.A.G.2
Fjöldi kvarna1
Lætur vita þegar vantar kaffibaunirJá
Uppáhellari - Pressa5 - 16 g
Thermoblock hitakerfi1
Vatnskerfi1
Dæla15 bar
Snjallvatnsfilter
Já, CLARIS Smart+
Lætur vita þegar þarf að tæma affallsbakkaJá

Þægindi notanda

Vatnstankur1,9 L
Fjöldi baunatanka1
Rúmtak baunatanks280 g
Lok á kaffibaunatanki sem verndar ilm og bragðJá
Kaffikorgur (hám. fjöldi bolla í tank)16

Net & snjallsímatengingar

WiFi Connect
Já
WiFi Connect tengibúnaður fylgir meðJá

Breytanlegar stillingar notanda

Stillanlegt magn af vatni í kaffiJá
Styrkleiki á kaffi10 stig
Hitastig á kaffi3 stig
Stillanlegt magn af mjólkJá
Stillanlegt magn af mjólkurfroðuJá
Hitastig á heitu vatni3 stig
Vista, afrita og sérsníða drykki
Já
Hægt að breyta nafni á drykkJá
Hægt að stilla grófleika mölunar
7 stig

Hentugt viðhald

Gerð vatnsfiltersCLARIS Smart+
One-Touch hreinsun mjólkurkerfis (sjálfvirk)Já
Innbyggt skol-, hreinsi- og afkölkunarkerfiJá
Tüv skírteini fyrir hreinlæti
Já

Sjálfbærni og umhverfið

OrkusparnaðarkerfiJá
„Slekkur á sér eftir“ stillanlegtJá
StraumrofiJá

Kaffistútar

Hæðarstillanlegur kaffistútur65 - 111 mm
Hæðarstillanlegur cappuccinostútur107 - 153 mm
Hæðarstillanlegur stútur fyrir heitt vatn70 - 116 mm

Tæknilegar upplýsingar

Hæð34,8 cm
Breidd28 cm
Dýpt44,6 cm
Heildarafl1.450 W
Spenna230 V
Rafstraumur - Amper10 A
Þyngd9,8 kg
Lengd rafmagnssnúru1,1 m
Rafmagnsnotkun þegar slökkt er á kaffivél0 W
MjólkurslöngutengiHP3 / CX3

Fylgihlutir

Tankur fyrir mjólkurhreinsikerfiJá
Kaffiskeið fyrir malað kaffiJá
VatnsfilterJá
HreinsitöflurJá
Hreinsiefni fyrir mjólkurleiðslurJá
WiFi Connect1 stk

Tengdar vörur