Jura kaffivél PRO X4 Dökkt stál (EB)

Vörunúmer: 15762

  479.990 kr

Svartir kaffidrykkir sem veita hámarks ánægju 

X4 býður upp á óviðjafnanlega kaffiupplifun. Vélin er með Professional Aroma kvörn (P.A.G.2) sem malar kaffibaunirnar fullkomlega og þremur nýstárlegum uppáhellingaraðferðum þróuðum af JURA. One-Touch Lungo uppáhelling töfrar fram ilmandi Americano og Lungo með sínu einkennandi bragði. Hefðbundið kaffi nýtur góðs af 3D uppáhellingartækni, á meðan Púlsuppáhellingaraðferð (P.E.P.®) tryggir espresso sem bragðast bæði öflugur en á sama tíma í jafnvægi.

X4 hefur stílfagurt notagildi. Íhlutir eru vel hannaðir sem auðveldar meðhöndlun, en auk þess er hægt að læsa vatns- og baunatanki. X4 kaffivélin býður kaffiunnendum upp á þægindi við notkun og síðast en ekki síst framúrskarandi kaffigæði. Mögulegt er að tengja vélina við greiðslukerfi, en vélin hentar vel fyrir mötuneyti, sjálfsafgreiðslu og stórar skrifstofur þar sem þarf að jafnaði að hella upp á allt að 100 bolla á dag.

Framúrskarandi kaffigæði

Nútímaleg Professional Aroma kvörn (P.A.G.2) malar kaffibaunirnar fullkomlega og tryggir að margbrotið bragð og ilmur sem einkenna hverja tegund bauna og ristun þeirra skili sér í kaffibollann. Kvörnin fer í hvíldarstöðu á milli uppáhellinga, sem fer betur með hana og lengir þar með endingartíma hennar. Þrjár mismunandi aðferðir við uppáhellingu tryggja auk þess að sérhver kaffidrykkur, sem valinn er með einni snertingu, viðheldur sínum sérstöku einkennum.

 

 

Fullkomin notagildi

Tvöföld fagmennska einkennir X4 kaffivélina og mætir hún bæði þörfum þess sem gengur um vélina og þeim sem drekkur kaffið úr henni. 3.5” snertiskjár og skýrir takkar framan á vél tryggja þægilegan aðgang að dásamlegum heimi kaffinautnar. Hvað varðar notkun, vekja hönnun íhluta og möguleikar á læsingum athygli. Mögulegt er að verja kaffivélina gegn utanaðkomandi áhrifum með því að læsa vatnstanki og baunatanki, á sama tíma og vel hannaðir hlutar hennar, eins og affallsbakki og tankur fyrir kaffikorg, auðvelda meðhöndlun við daglega notkun.

 

 

Tímalaust professional útlit

X4 endurspeglar klassíska JURA hönnun, með sínum beinu línum og dökka stáli. Kaffivélin er sannkallað augnayndi og passar jafn vel inn í stílhreint umhverfi sem og á borð fjölfarins veitingahúss. Hönnun X4 lýsir sér best í fullkomnu jafnvægi á milli fagurfræði og virkni.

 

 

Jafn einstök og þínar þarfir eru 

Mögulegt er að tengja X4 við greiðslukerfi sem eru sérstaklega hannað fyrir JURA professional kaffivélar. Þannig er hægt að búa til klæðskerasniðna heildarlausn varðandi kaffi fyrir fjölbreyttar aðstæður.

Notendaleiðbeiningar

Hönnun og útlit

LiturDökkt stál - Dark inox
HönnunFrístandandi
VörulínaX lína
Skjár3.5" TFT litaskjár
Lýsing í kaffibolla

Notkun

Ráðlagður bollafjöldi að hámarki á dag100
Hentar fyrir stórar skrifstofur
Hentar fyrir mötuneyti
Hentar fyrir sjálfsafgreiðslu
Hentar fyrir hjúkrunarheimili

Úrval drykkja

1 Espresso
2 Espresso
1 Kaffi
2 Kaffi
1 Americano
2 Americano
1 Lungo
2 Lungo
1 Special coffee
2 Special coffee
Kanna af kaffi
Heitt vatn
Heitt vatn fyrir Grænt Te
Fjöldi drykkja13

Fjöldi bolla á klst (samkvæmt DIN 18873-2)

Espresso83
Kaffi76
2 x Kaffi96
Heitt vatn80

Tækni

Púlsuppáhelling P.E.P.®
OneTouch Lungo
Ilmaukandi for-uppáhelling
Já, Intelligent Pre-Brew Aroma System (I.P.B.A.S.©)
Gerð kvarnarP.A.G. 2
Uppáhellari - Pressa5 - 16 g
Thermoblock hitakerfi1
Vatnskerfi1
Afkastamikil dæla, 15 bar1

Þægindi notanda

Vatnstankur5,0 L
Rúmtak baunatanks500 g
Lok á kaffibaunatanki sem verndar ilm og bragð
Hægt að fá stærri baunatank (Valkvætt)Já, stækkanlegur í 1000 g
Kaffikorgur (hám. fjöldi bolla í tank)40
Hægt að sjá fjölda uppáhelltra kaffidrykkja
Lætur vita þegar vantar kaffibaunir
Lætur vita þegar þarf að tæma affallsbakka
Hægt að læsa baunatanki & vatnstanki

Breytanlegar stillingar notanda

Stillanlegt magn af vatni í kaffi
Styrkleiki á kaffi10 stig
Hitastig á kaffi3 stig
Hitastig á heitu vatni3 stig
Hægt að stilla grófleika mölunar

Hentugt viðhald

Gerð vatnsfiltersCLARIS Pro Smart maxi / CLARIS Pro Smart+
Innbyggt skol-, hreinsi- og afkölkunarkerfi
TÜV skírteini fyrir hreinlæti

Sjálfbærni og umhverfið

Orkusparnaðarkerfi
„Slekkur á sér klukkan“ stillanlegt
Straumrofi

Kaffistútar

Hæðarstillanlegur kaffistútur65 - 153 mm
Hæðarstillanlegur stútur fyrir heitt vatn65 - 153 mm

Tæknilegar upplýsingar

Hæð47 cm
Breidd37,3 cm
Dýpt46,1 cm
Heildarafl1.450 W
Spenna230 V
Rafstraumur - Amper10 A
Þyngd12,7 kg
Lengd rafmagnssnúru1,2 m
Hægt að tengja við greiðslutæki (Valkvætt)Já, með aukabúnaði
Rafmagnsnotkun þegar slökkt er á kaffivél< 0,5 W

Tengdar vörur