Ný kynslóð af hinni vinsælu J línu er stútfull af tækninýjungum með það að markmiði að bjóða upp á enn fleiri unaðslega kaffidrykki. J8 býður upp á flesta hefðbundna kaffidrykki en einnig nýja kaffidrykki.
Sæt mjólkurfroða (e. Sweet Foam technology) bragðbætir mjólkurfroðuna með þínu uppáhalds sírópi. Þetta þýðir að nú er hægt að hella upp á Sweet Latte með einni snertingu í J8 kaffivélinni. P.A.G.2+ kvörnin losar spennu á milli uppáhellinga sem tryggir endingarbetri kvörn og gerir manni kleift að breyta grófleika mölunar án þess að kvörn sé að mala.
Kaffivélin er útbúin Coffee Eye sem skynjar staðsetningu á bolla og aðlagar sjálfkrafa á skjánum þá kaffidrykki sem í boði eru miðað við staðsetningu á bollanum.
Tækninýjungar vélarinnar endurspeglast einnig í útlitshönnun hennar, sem er glæsileg.
Sweet Foam - Nýr heimur nautna
Færustu matreiðslumeistarar vita að leyndarmálið á bakvið það að búa til eitthvað einstakt er að nota hrein og fersk hráefni sem unnin eru að þekkingu. Það sama á við fína og fagmannlega útbúna kaffidrykki. Nýja Sweet Foam tæknin bragðbætir mjólkurfroðu við uppáhellingu kaffidrykkja með sírópshólki sem tekur nautnasegginn á nýjan stað. Með því að velja tegund og magn af sírópi er þinn bragðprófíll sérsniðinn eftir þínum smekk. J8 getur þar með útbúið hinn nýja og vinsæla Sweet Latte með einni snertingu.
Coffee eye – Snjall bollaskynjari
Hvort svo sem þú viljir klassískan kaffibolla úr kaffistút fyrir miðri vél eða mjólkurkaffidrykki úr cappucinostút hægra megin á kaffivélinni þá auðveldar Coffee Eye að hella upp á fullkominn kaffibolla. Þessi snjalli bollaskynjari segir kaffivélinni undir hvorn kaffistútinn bollinn er settur og kaffivélin aðlagar þannig á skjánum hvaða kaffidrykki hún býður uppá út frá því.
P.A.G.2+ kvörn - Tækni í fremstu röð
Nýja Professional Aroma kvörnin 2+ er í sérflokki. Hún er hönnuð til að vera sérstaklega hljóðlát með innblæstri frá tækni úr Formúlu 1. Kaffivélin athugar og fylgist með þeim grófleika mölunar sem er stillur á kvörn. Ef valin er kaffidrykkur mælir kaffivélin með áveðnum grófleika á mölun sem gerir notanda kleift að breyta honumn ef þarf og tryggja þannig betra bragð og ilm. Hægt er að breyta grófleika mölunar hvenær sem er, hvort sem kvörn er að mala eða ekki. Á meðan P.A.G.2+ kvörnin er ekki að mala þá fer hún í hvíldarstöðu með því að losa um spennu. Þetta tryggir betri og endingarlengri líftíma á P.A.G.2+ kvörninni.
Töfrandi hönnun - jafnt að innan sem að utan
Útlit J8 kristallast í hreinleika og samhverfri hönnun. Gæði kaffivélarinnar og sérþekkingin sem fór í hönnun hennar endurspeglast í glæsilegri framleiðslu og nákvæmu handverki. Þessi endurtúlkun á alþjóðlega margverðlaunaðri hönnun afhjúpar ástríðu fyrir nákvæmni.