Fullkomin samsetning ánægju, fjölbreytni og munaðar
Nýtt og endurbætt módel úr einni vinsælustu kaffivélalínu Jura. Professional Aroma kvörnin tryggir fullkomna mölun kaffibauna, uppáhellingarferlið laðar fram öll blæbrigði þeirra og vinsælir kaffidrykkir eru betri en nokkru sinni fyrr þökk sé loftkenndri, laufléttri mjólkurfroðu.
E8 kaffivélin býður upp á 17 mismunandi kaffidrykki – allt frá arómatískum espresso til tískudrykksins cortado. Nýtt vökvakerfi vélarinnar gerir þér kleift að hella upp á langa, milda kaffidrykki eins og caffé Barista og lungo Barista samkvæmt gæðastöðlum kaffibarþjóna. Fyrir þá sem vilja kaffidrykkinn sinn enn sterkari er einnig mögulegt að hella upp á cappuccino, flat white eða latte macchiato með því að bæta við auka espresso skoti. Kaffivélin er með sjálfvirkri hreinsun mjólkurkerfis sem er sett af stað með einni snertingu. Auk þess tryggja 2.8" litaskjár ásamt stýrikerfi með gervigreind einfalda og þægilega notkun vélarinnar.
Fyrsta flokks kaffigæði með Professional Aroma kvörn
Auðkennandi eiginleikar Professional Aroma kvarnar eru annars vegar 12.2%* meiri ilmur og hins vegar samfelld gæði mölunar yfir allan þjónustutíma kaffivélarinnar. Púlsuppáhelling (P.E.P.®) sér til þess að stuttir kaffidrykkir séu bæði öflugir og bragðgóðir, á meðan forhitun vatns tryggir fullkomið hitastig kaffidrykkja strax frá fyrsta bolla.
*Professional Aroma kvörn miðað við hefðbundnar kvarnir
Einstaklega þægileg í notkun
2.8" litaskjár, sex takkar og algerlega nýtt stýrikerfi með gervigreind tryggja einfalda og þægilega notkun kaffivélarinnar. Algóritmi ber kennsl á einstaklingsbundnar þarfir, aðlagar upphafsskjá eftir þeim og birtir þar tvo til fjóra af uppáhaldsdrykkjum notandans. Þú getur raðað kaffidrykkjum á skjánum, birt eða falið nöfn þeirra hvenær sem er og aðlagað kaffidrykkina eftir þínum smekk, til dæmis hellt upp á tvöfaldann cappuccino með extra skoti. Allar viðeigandi upplýsingar varðandi kaffivélina og viðhald hennar birtast með skírum hætti á skjánum.
Hreinsun á mjólkurkerfi með einni snertingu
Sjálfvirk hreinsun mjólkurkerfis er sett af stað með einni snertingu og tekur skamman tíma. Ergónómísk hönnun affallsbakkans kemur í veg fyrir að vatnið slettist þegar hreinsun á sér stað, bakkann er auðvelt að fjarlægja með annarri hönd og hann uppfyllir hæstu gæðastaðla.
Glæsileg og samstæð hönnun
Hönnun Jura kaffivéla er svipmikil en um leið hrein og snyrtileg. Hágæða efnisval og nákvæmt handbragð einkenna nútímalegu E8 kaffivélina og undirstrika gæði hennar. Smáatriði líkt og rifflaður vatnstankur eða krómuð plata sem kaffibollinn stendur á samræmast hreinni, samstæðri hönnun kaffivélarinnar fullkomlega. Útlitshönnunin ber merki um allt í senn gæði, virkni og endingu.