Gorenje BPS6737E07B er rúmgóður og öflugur 60 cm innbyggingarofn sem sameinar nútímalegt svart útlit, fjölbreyttar eldunaraðgerðir og einstaklega þægileg þrif. Ofninn er 77 lítra, nær allt að 300°C hita og er í orkuflokki A+.
Ofninn er búinn pyrolysis-sjálfhreinsikerfi, sem hitar ofnrýmið upp í mjög háan hita og brennir fitu og matarleyfar niður í ösku. Að hreinsun lokinni þarf því aðeins að þurrka úr ofninum.
Fjölbreytt eldunarkerfi gera ofninn hentugan fyrir allt frá hefðbundnum bakstri og steikingu yfir í pizzur og stökkari rétti. AirFry býður upp á eldun með heitu lofti, Pizza-stillingin nýtir háan hita fyrir pizzubakstur og FrozenBake er sérstaklega ætluð fyrir frosinn mat. Einnig eru meðal annars GentleBake, afþíðing og hraðhitun í boði.
FastPreheat hraðhitunin getur hitað ofninn upp í 200°C á aðeins 5 mínútum, sem styttir biðtímann þegar elda þarf hratt.
Ofnhurðin er með fjórföldu gleri og UltraCoolDoorQuadro hönnun sem hjálpar til við að halda ytra byrði hurðarinnar svalara. Ofninn er jafnframt með mjúklokun, Dynamic Cooling System Plus og útdraganlegum teleskópsleðum á einni hæð.
Helstu eiginleikar:
Fylgihlutir: 1 djúp emaleruð ofnskúffa, 2 grunnar emaleraðar ofnskúffur og 1 ofngrind.