Sérpöntun
Klassísk 90 cm breið borðvifta frá Smeg. Borðviftan er með hlutlaust útlit og sérstaklega hönnuð til þess að passa við fjölbreytt úrval eldhústækja

Frábær lausn fyrir opin eldhúsrými
Borðvifta er skemmtilegur valkostur fyrir þá sem eru með séróskir og vilja ekki láta mikið á viftunni bera. Fágaður og stílhreinn toppur lokar viftunni þegar hún er í neðstu stöðu. Mótor knýr borðviftu upp í fullkomna stöðu fyrir notkun og aftur niður til baka þegar slökkt er á henni. Viftan er með aflaukandi booster stillingu sem er hægt að velja ef eldamennskan kallar á það. Þá sogar háfurinn til sín mikla lykt og gufu. Mögulegt er að hreinsa loftið eftir eldamennsku með því að láta háfinn ganga áfram í 15 mínútur. Einnig er mögulegt að stilla borðviftuna þannig að hún gangi í 10 mínútur á hverri klukkustund í sólarhring og hreinsi loftið í eldhúsinu algerlega.

Jaðarsog og LED lýsing
Í háfum og viftum með jaðarsogi eru fitufilterarnir í felum á bak við fallega panela. Gufan sem myndast við eldamennskuna sogast inn í háfinn við jaðar panelanna. LED ljós borðviftunnar eru endingargóð, hagkvæm og lýsa vinnuflötinn fyrir framan borðviftuna fullkomlega upp. Borðviftan er með öryggisvirkni sem slekkur sjálfkrafa á viftunni eftir 10 klukkustunda notkun og þar að auki er hún gerð úr einföldu hertu öryggisgleri sem splundrast í marga litla og bitlausa bita skyldi það brotna.

Breytileg loftrás
Mögulegt er að nota borðviftuna annað hvort til útblásturs eða í hringblæstri. Vifta sem er sett upp til útblásturs dregur að sér lykt og gufu sem myndast við matreiðslu og knýr út úr húsinu. Fullkomin loftskipti eiga sér þannig stað í eldhúsinu. Borðviftunni má breyta í hringrásandi viftu með hringrásarsetti og kolafilter. Í hringblæstri dregur viftan að sér lykt og gufu, knýr loftið í gegnum kolafilter sem hreinsar það og skilar hreinsuðu loftinu aftur inn í eldhúsið.
Innbyggimál
Notendaleiðbeiningar
Orkumiði
Uppsetningarleiðbeiningar
Vöruupplýsingablað