Jura kaffivél Z10 hvít - Diamond

Vörunúmer: 15410

  424.990 kr
  Vara væntanleg

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

Byltingarkennd Z10 með P.R.G. fyrir heita og kalda kaffidrykki

Svissneskt verkfræðivit færir okkur enn eitt meistaraverkið, Z10, sem býður upp á tvöfalt fleiri drykkjarmöguleika en hafa verið í boði hingað til. Með einni snertingu er mögulegt að hella upp á fjölmarga heita kaffidrykki allt frá bragðsterkum espresso til vinsælla drykkja eins og flat white. Auk þess getur vélin hellt upp á Cold Brew, kalda kaffidrykki, og opnar þannig alveg nýja vídd fyrir kaffiunnendur. Product Recognising Grinder (P.R.G.) gerir þetta mögulegt, en um er að ræða nýja kvörn sem greinir á milli mismunandi kaffidrykkja og aðlagar grófleika mölunar samkvæmt því.

JURA hefur auk þess þróað byltingarkennda aðferð við uppáhellingu kaldra kaffidrykkja, svala tækninýjung í orðsins fyllstu merkingu. Í uppáhellingarferlinu er köldu vatni púlsað rólega í gegnum nýmalað kaffið við háan þrýsting. Útkoman er algerlega ný leið til að upplifa kaffi – hressandi og orkugefandi kaldir kaffidrykkir með dásamlegu jafnvægi ilms og bragðs.

Þessi framúrskarandi, hágæða kaffivél er með Blue Crystal snúningsrofa og 4.3" háskerpu lita- og snertiskjá. Notendavæn valmynd og algerlega nýtt stýrikerfi með gervigreind gera kaffivélina einstaklega auðvelda og þægilega í notkun. Tækninýjungar vélarinnar endurspeglast einnig í skúlptúrhönnun hennar. Kúpt-íhvolf framhliðin er til að mynda augljós sönnun bæði umhyggju fyrir smáatriðum og nákvæmni í framleiðslu. Z10 er hágæða kaffivél og yfirlýsing um framúrskarandi smekk.

Product Recognising Grinder (P.R.G.) - Ný kvörn sem greinir á milli kaffidrykkja

Til þess að tryggja fullkomna mölun fyrir sérhvern kaffidrykk þróuðu verkfræðingar JURA nýja kvörn, Product Recognising Grinder (P.R.G.). Hágæða kvörn sem er rafstýrð og aðlagar grófleika mölunar að fyrirfram skilgreindum stillingum á aðeins sekúndubroti, mun hraðar og oftar en mögulegt er þegar kvarnir eru stilltar handvirkt. Skali mölunar nær allt frá mjög fínni mölun fyrir stutta klassíska kaffidrykki til mjög grófrar mölunar fyrir sérstaka Lungo kaffidrykki. Kaffiunnandinn þarf ekkert að gera, aðlögun mölunar á sér stað sjálfkrafa í hvert skipti sem kaffidrykkur er útbúinn. Þökk sé Aroma selection er einnig hægt að stilla mölun handvirkt fyrir hverja uppáhellingu, sé þess óskað.

 

 

Cold Brew – feikilegur ferskleiki

Byltingarkennd aðferð við uppáhellingu kaldra kaffidrykkja gerir það að verkum að Z10 hellir upp á ósvikna Cold Brew kaffidrykki. Á meðan flestir hefðbundnir kaldir kaffidrykkir eru búnir til með heitu uppáhelltu kaffi sem síðan er kælt, notar Z10 kalt vatn og púlsar því í gegnum gróft, nýmalað kaffið við háan þrýsting. Útkoman í bollanum er náttúrulegur, orkugefandi og hressandi drykkur þar sem ávaxtakeimur kaffisins fær að njóta sín án þess að kaffidrykkurinn bragðist bitur. Allt annað væri bara venjulegt kalt kaffi.

 

 

Áttunda kynslóð uppáhellara

Uppáhellarinn er hjarta hverrar sjálfvirkrar kaffivélar. JURA hefur hannað áttundu kynslóð uppáhellara fyrir Z10 kaffivélina. Einstök 3D uppáhellingartækni gerir vatninu kleift að flæða jafnt í gegnum nýmalað kaffið á nokkrum mismunandi stöðum. Ilmur kaffisins er þannig hámarkaður, bæði fyrir heita kaffidrykki og Cold Brew kaffidrykki.

 

 

Glæsileiki sem stenst tímans tönn 

Hönnun og vandað efnisval gegna mikilvægu hlutverki þegar kemur að endingu vöru. JURA leitast alltaf við að hanna kaffivélar með sígildu útliti, sem eiga enn vel við eftir margra ára notkun og vekja stolt hjá eigendum sínum. Ósveigjanleg gæði, góð ending, hágæða efnisval og hámarks nákvæmni í framleiðslu tryggja yfirburði kaffivélarinnar bæði þegar kemur að uppáhellingu og fagurfræði. Hár standard handverks sést hvað best á hinni flóknu kúptu-íhvolfu framhlið. Hönnun vélarinnar ber auk þess vott um mikla umhyggju fyrir smáatriðum og eru fágaður, rifflaður vatnstankur auk samstæðrar, stílhreinnar hlífar fyrir vatnsfilter aðeins tvö lítil dæmi um hana. Þú skynjar hvað JURA meinar með raunverulegum gæðum, um leið og þú snertir Z10 kaffivélina.

 

Notendaleiðbeiningar

Hönnun og útlit

LiturHvítur
HönnunFrístandandi
VörulínaZ lína
Einstakt hráefniHvelftd-Kúft 3mm framhlið
Skjár4,3" TFT lita- og snertiskjár
Snúningsrofi
Lýsing í kaffibolla
Lýsing í vatnstanki
Fallrenna fyrir malað kaffi

Úrval drykkja

1 espresso
1 Espresso doppio
2 espresso
1 kaffi
1 kaffi - Cold brew
2 kaffi
1 cappuccino
1 cappuccino - Extra skot
1 cappuccino - Cold brew
1 caffè latte
1 caffè latte extra shot
1 caffè latte - Cold brew
1 Flat white
1 Flat White - Extra skot
1 Flat White - Cold brew
1 Cortado
1 Cortado - Cold brew
1 espresso macchiato
1 espresso - Cold brew
1 espresso macchiato - Cold brew
1 latte macchiato
1 latte macchiato - Extra skot
1 latte macchiato - Cold brew
1 Caffè Barista
2 Caffè Barista
1 Lungo Barista
2 Lungo Barista
Kanna af kaffi
1 skammtur mjólkurfroða
1 skammtur mjólk
Heitt vatn
Heitt vatn fyrir Grænt Te
Fjöldi drykkja32
Hægt að nota malað kaffi

Tækni

Cold brew - Kaldbruggun
Sjálfaðlagandi kvörn - P.R.G.
OneTouch kaffidrykkir með mjólk
Púlsuppáhelling P.E.P.®
Hægt að tengja við snjallsímaforritið J.O.E.
Forhitun vatnsleiðslna
3D uppáhellingartækni
Gerð kvarnarP.R.G. kvörn (Product recognising grinder) úr ryðfríu stáli
Fjöldi kvarna1
Lætur vita þegar vantar kaffibaunir
Uppáhellari - Pressa5 - 16 g
Thermoblock hitakerfi1
Vatnskerfi1
Dæla15 bar
Snjallvatnsfilter
Já, CLARIS Smart
Lætur vita þegar þarf að tæma affallsbakka

Þægindi notanda

Vatnstankur2,4 L
Fjöldi baunatanka1
Rúmtak baunatanks280 g
Lok á kaffibaunatanki sem verndar ilm og bragð
Kaffikorgur (hám. fjöldi bolla í tank)20

Net & snjallsímatengingar

WiFi Connect
WiFi Connect tengibúnaður fylgir með

Breytanlegar stillingar notanda

Stillanlegt magn af vatni í kaffi
Hægt að breyta vatnsmagni í bolla við hverja uppáhellingu
Styrkleiki á kaffi10 stig
Hægt að breyta styrkleika á kaffi við hverja uppáhellingu
Hitastig á kaffi3 stig
Stillanlegt magn af mjólk
Hitastig á mjólk10 stig
Stillanlegt magn af mjólkurfroðu
Hitastig á mjólkurfroðu10 stig
Stillanlegt magn af heitu vatni
Hitastig á heitu vatni3 stig
Vista, afrita og sérsníða drykki
Hægt að breyta nafni á drykk
Hægt að stilla grófleika mölunar
Já, breytanleg með sjálfvirkum hætti

Hentugt viðhald

Gerð vatnsfiltersCLARIS Smart
Sjálfvirk skolun kaffistúta
Innbyggt skol-, hreinsi- og afkölkunarkerfi
Sjálfvirk skolun mjólkurstúta
Innbyggt mjólkurhreinsikerfi
Staða viðhalds og umhirðu sjáanleg á skjá
Stillanleg vatnsharka
Hægt að fjarlægja mjólkurleiðslur
Tüv skírteini fyrir hreinlæti

Sjálfbærni og umhverfið

Orkusparnaðarkerfi
„Slökkvir á sér eftir“ stillanlegtJá, 15 mín - 9 klst
Straumrofi
Orkunýtingarflokkur (A - G)A
Árleg orkunotkun í kWh62,2 kWh

Kaffistútar

Hæðarstillanlegur kaffi- og cappuccinostútur78 - 150 mm
Breiddarstillanlegur kaffi- og cappuccinostútur24 - 50 mm
Stútur fyrir heitt vatn
Hæðarstillanlegur stútur fyrir heitt vatn

Tæknilegar upplýsingar

Hæð38 cm
Breidd32 cm
Dýpt45 cm
Heildarafl1.450 W
Spenna230 V
Rafstraumur - Amper10 A
Tíðni50 Hz
Þyngd12 kg
Lengd rafmagnssnúru1,1 m
Rafmagnsnotkun þegar slökkt er á kaffivél0 W
MjólkurslöngutengiHP3

Fylgihlutir

Tankur fyrir mjólkurhreinsikerfi
Kaffiskeið fyrir malað kaffi
Vatnsfilter1
Hreinsitöflur
Hreinsiefni fyrir mjólkurleiðslur
WiFi Connect1 stk

Tengdar vörur