Einstaklega fallegur töfrasproti úr 50´s línu SMEG. Þægilegur í notkun, hnífar og armur úr ryðfríu stáli,
stillanlegur snúningshraði og Turbo stilling.
Frábært tæki sem sparar þér tíma við eldamennskuna.
Mögulegt er að blanda silkimjúkar og kremkenndar blöndur úr hvers kyns hráefnum með Smeg töfrasprotanum,
jafnvel hörðum ávöxtum og grænmeti. Snúningshraða töfrasprotans er hægt að stilla með einföldum toppsnúningi
og þar með aðlaga hann að því verki sem á að vinna. Hraðastilling tryggir góðan árangur við blöndun og Turbo stilling
gerir þér kleift að nýta allt 700 W afl mótorsins. Ergónómísk hönnun handfangsins tryggir örugga notkun, handfangið
er stamt viðkomu og varnar því að töfrasprotinn renni úr höndum notandans. Armurinn er úr ryðfríu stáli,
hann er sterkbyggður og endingargóður auk þess sem auðvelt er að fjarlægja hann ef nota á aðra aukahluti.
Hnífarnir eru einnig úr ryðfríu stáli, en lögun þeirra myndar ákveðið flæði hráefna við blöndun sem tryggir
fullkominn árangur við hverja notkun.
Aðlagaðu töfrasprotann að þínum þörfum.
Smeg 50´s töfrasprotinn er fjölhæfur og frábær fyrir alls kyns matvinnslu, sérstaklega þegar hann er notaður
með aukahlutasetti sem mögulegt er að panta. Tengdu tækið við þeytara, grænmetismaukara, söxunarskál
eða blöndunarskál til þess að búa til smoothie og súpur, mylja klaka, þeyta rjóma – nefndu það!
'
Notendaleiðbeiningar
Hönnun og útlit
Litur Kremlitaður
Litur bakhandfangs Grár
Vörulína 50´s Retro style
Hraða- og aflstilling já + turbo stilling
Stjórnborð Þrýstitakkar
Gæði
Hráefni arms töfrasprota Ryðfrítt stál
Hráefni hnífa Ryðfrítt stál
Tæknilegar upplýsingar
Lengd 41,4 cm.
Breidd 6,5 cm.
Dýpt 6,5 cm.
Heildarafl 700 W.
Spenna 220 – 240 V.
Þyngd 0,85 kg.
Snúningar á mínútu- rpm min 8.150 rpm. – max 14.850 rpm.
Lengd rafmagnssnúru 1,5 m.