Athugið að þessa vöru þarf að sérpanta!
Hámarks afköst í hæsta gæðaflokki
JURA sýnir svissneskt hugvit og fagmennsku eins og best verður með tilkomumikilli GIGA X3c. Alls staðar þar sem þörf er að hella upp á að minnsta kosti 150 bolla á dag að jafnaði, vekur kaffivélin aðdáun notenda fyrir gæði, virkni og áreiðanleika. Kaffivélin er með tveimur dælum og tveimur vatns- og hitakerfum og er árangurinn sjálfvirk hátækni kaffivél sem er sérhönnuð fyrir þarfir stórra skrifstofa, námskeiðs- og fundarsala auk sjálfsafgreiðslu.
Tækninýjungar fyrir fullkomna ánægju
Allt gerist þetta inni í GIGA X3c: Nákvæm, stöðug og jöfn mölun til margra ára næst með tveimur afkastamiklum keramikkvörnum. Mölunin er sjálfvirk og rafstýrð þökk sé mikilvægri tækninýjung A.G.A.© (sjálfvirk aðlögun mölunar). Púlsuppáhelling tryggir fullkomna lengd uppáhellingar fyrir stutta kaffidrykki, sem skilar sér í enn öflugri og bragðbetri espresso og ristretto. CLARIS Pro snjallfilter síar vatn með áreiðanlegum hætti og tryggir fullkomin vatnsgæði ásamt I.W.S.® tækni. GIGA X3c töfrar líka fram alla vinsælustu drykkina með mjólk og mjólkurfroðu á fullkominn hátt þökk sé fínfroðutækni og hæðarstillanlegum kaffistútum. Hraðauppáhelling á kaffi tryggir síðan kaffi í bollann á mettíma. Áfyllingum er haldið í lágmarki vegna stórs 1 kg baunatanks með loki. Auk þess hámarka vatnstankur, affallsbakki og bakki fyrir kaffikorg sjálfsstæði kaffivélarinnar, GIGA X3c hentar þar af leiðandi einstaklega vel að vera stjórnað úr síma. Aukið afl sameinað hæstu gæðum – það er nýja GIGA X3c. 4.3" TFT háskerpu lita- og snertiskjárinn er bæði einfaldur í notkun og algjörlega snjall. Nútímaleg grafík gerir bæði notkun auðskiljanlega og fyrstu notendur örugga við stjórnun. Affallsbakka má setja í uppþvottavél og hann er hægt að fjarlægja og tæma með annarri hendi. Þungamiðja affallsbakkans er staðsett á fullkomnum stað til þess að koma í veg fyrir að það skvettist upp úr honum. Einföld, hreinleg, hraðvirk, þægileg – þessi einkennisorð eru innlimuð í alla hluta kaffivélarinnar alveg niður í minnstu smáatriði.
TÜV skírteini fyrir hreinlæti
Viðhald kaffivélarinnar GIGA X3c er alveg jafn einfalt, rökrétt og snjallt eins og notkun hennar. Innbyggð skol- og hreinsikerfi ásamt sérþróuðum rekstrarvörum fyrir JURA kaffivélar, tryggja TÜV skírteini fyrir hollustu og hreinlæti. Jafnvel þrif á mjólkurleiðslum eru sjálfvirk og sett af stað með einum hnappi. Auðvelt er að taka sterkbyggða, tvöfalda kaffistútinn í sundur fyrir þrif. Aðgengi að mjólkurstút er að framanverðu inni í tvöfalda kaffistútnum, en auk góðs aðgengis er auðvelt að skipta um mjólkurstútinn ef þörf er á.
Jafn einstök og þínar þarfir eru
Mögulegt er að nota GIGA X3c staka eða tengja hana við aukahluti eins og bollahitara, mjólkurkæli eða myntmæli sem eru sérstaklega hannaðir fyrir JURA professional kaffivélar. Þannig er hægt að búa til klæðskerasniðna heildarlausn varðandi kaffi fyrir fjölbreyttar aðstæður. Einnig er handhægt að aðlaga kaffivélina að auknum kröfum.
Notendaupplýsingar
Einblöðungur
Tæknilegar upplýsingar
Hönnun og útlit
Litur Ál
Hönnun Frístandandi
Vörulína GIGA X lína
Einstakt hráefni Ál
Skjár TFT lita- & snertiskjár
Snúningsrofi Já
Lýsing í kaffibolla Já
Fallrenna fyrir malað kaffi
Já
Úrval drykkja
1 ristretto Já
2 ristretto Já
1 espresso Já
2 espresso Já
1 kaffi Já
2 kaffi Já
1 cappuccino Já
2 cappuccino Já
1 caffè latte Já
2 caffè latte Já
1 Flat white Já
2 Flat white Já
1 espresso macchiato Já
2 espresso macchiato Já
1 latte macchiato Já
2 latte macchiato Já
1 special coffee - Lungo Já
2 special coffee - Lungo Já
Kanna af kaffi Já
1 skammtur mjólkurfroða Já
2 skammtar mjólkurfroða Já
1 skammtur mjólk Já
2 skammtar mjólk Já
Heitt vatn Já
Heitt vatn fyrir Grænt Te Já
Heitt vatn fyrir Svart Te Já
Fjöldi drykkja 31
Hægt að nota malað kaffi Já
Afkastageta
Ráðlagður bollafjöldi að hámarki á dag 150
Mjög hraðvirk uppáhelling heits vatns Já, Power Hot Water System
Kanna af kaffi (360 ml / 12 oz.) 1 mín 57 sek
2 latte macchiato 1 mín 29 sek
2 cappuccino 1 mín 18 sek
2 Flat white 1 mín 29 sek
2 caffè latte 1 mín 10 sek
2 kaffi 1 mín 1 sek
2 espresso 56 sek
2 ristretto 38 sek
Heitt vatn (200 ml / 7 oz) 27 sek
Tækni
OneTouch kaffidrykkir með mjólk
Já
Púlsuppáhelling P.E.P.®
Já
SpeedFuntion - Hraðuppáhelling á kaffi
Já
Hægt að tengja við snjallsímaforritið J.O.E.
Já
Bluetooth pungur fylgir með
Já
Ilmaukandi for-uppáhelling
Já, Intelligent Pre-Brew Aroma System (I.P.B.A.S.©)
Gerð kvarnar Professional Keramikkvörn
Fjöldi kvarna 1
Lætur vita þegar vantar kaffibaunir Já
Uppáhellari - Pressa 5 - 16 g
Thermoblock hitakerfi 2
Vatnskerfi 2
Dæla 15 bör - 2 dælur
Lætur vita þegar þarf að tæma affallsbakka Já
Þægindi notanda
Fjöldi baunatanka 1
Rúmtak baunatanks 1.000 g
Lok á kaffibaunatanki sem verndar ilm og bragð Já
Kaffikorgur (hám. fjöldi bolla í tank) 40
Hægt að fá affallssett fyrir kaffikorg og affallsvatn Já
Beintengd við vatnsinntak Já, innbyggð tenging (G 3/4)
Hægt að sjá fjölda uppáhelltra kaffidrykkja Já
Breytanlegar stillingar notanda
Stillanlegt magn af vatni í kaffi Já
Hægt að breyta vatnsmagni í bolla við hverja uppáhellingu Já
Styrkleiki á kaffi 10 stig
Hægt að breyta styrkleika á kaffi við hverja uppáhellingu Já
Hitastig á kaffi 3 stig
Stillanlegt magn af mjólk Já
Hitastig á mjólk 10 stig
Stillanlegt magn af mjólkurfroðu Já
Hitastig á mjólkurfroðu 10 stig
Stillanlegt magn af heitu vatni Já
Hitastig á heitu vatni 3 stig
Vista, afrita og sérsníða drykki
Já
Hægt að breyta nafni á drykk Já
Hægt að stilla grófleika mölunar
Já
Hentugt viðhald
Gerð vatnsfilters F 3300
Sjálfvirk skolun kaffistúta Já
Innbyggt skol-, hreinsi- og afkölkunarkerfi Já
Sjálfvirk skolun mjólkurstúta Já
Innbyggt mjólkurhreinsikerfi Já
Staða viðhalds og umhirðu sjáanleg á skjá Já
Stillanleg vatnsharka Já
Hægt að fjarlægja mjólkurleiðslur Já
Tüv skírteini fyrir hreinlæti
Já
Sjálfbærni og umhverfið
Orkusparnaðarkerfi Já
„Slökkvir á sér eftir“ stillanlegt Já, 15 mín - 15 klst
„Kveikir á sér klukkan“ stillanlegt Já
„Slökkvir á sér klukkan“ stillanlegt Já
„Kveikir/slökkvir á sér klukka“ stillanlegt fyrir hvern vikudag Já
Straumrofi Já
Öryggi
Hægt að læsa stillingum notanda
Já
Kaffistútar
Hæðarstillanlegur kaffi- og cappuccinostútur 70 - 159 mm
Stútur fyrir heitt vatn Já
Hæðarstillanlegur stútur fyrir heitt vatn 69 - 165 mm
Tæknilegar upplýsingar
Hæð 56,5 cm
Breidd 32 cm
Dýpt 49,7 cm
Heildarafl 2.700 W
Spenna 220 - 240 V
Rafstraumur - Amper a.m.k. 13 A
Tíðni 50 Hz
Þyngd 19 kg
Lengd rafmagnssnúru 1,1 m
Lengd vatnsinntaksslöngu 1,5 m
Hægt að tengja við greiðslutæki (Valkvætt) Já, með aukabúnaði
Rafmagnsnotkun þegar slökkt er á kaffivél < 0,5 W
Rafmagnsnotkun þegar slökkt er á orkusparnaðarkerfi 25 W á klst
Rafmagnsnotkun á orkusparnaðarkerfi 9 W á klst
Mjólkurslöngutengi HP3
Fylgihlutir
Tankur fyrir mjólkurhreinsikerfi Já
Kaffiskeið fyrir malað kaffi Já
Hreinsitöflur Já
Hreinsiefni fyrir mjólkurleiðslur Já